Ef maður gerir þetta upp þá verður að segjast að byrjunin var erfiðust í
þessu. Frekar óljóst í upphafi hversu langt ferli væri framundan,
hlunkagifs og 1. bekkur í menntó að bresta á. Drengurinn hóf s.s.
skólagönguna í Kvennó með pabba gamla oftar en ekki á kantinum og Ísak á
orðið slatta af nýjum vinum sem þekkja hann ekki öðruvísi en á hækjum.
Kvennó – þrjár byggingar, hver þeirra örugglega að meðaltali 100 ára
gamlar og sameiginlegur fjöldi lyfta í þessum þremur byggingum er 1
kvikindi. Dreptu mig ekki. En einhvern veginn hafðist þetta af.
Málin urðu aðeins þægilegri með minna gifsinu og þegar göngugifsið kom undir þá var hann nánast búinn að losa sig við báðar hækjurnar eftir 3 daga. Göngugifsið fór s.s. af núna í morgun og eftir smá slökun þá var farið í það að leggja löppina í bleyti og framkalla hamskipti á fætinum, sem er helv... rýr á þessu stigi málsins. Kappinn stígur núna í fótinn sársaukalaust þótt menn fari ekki hratt yfir. Það var svo ekki hægt annað en að reima á sig nýju Kyrie körfuboltaskóna, bara til að prufa, þótt prufukeyrsla á þeim á fullu gasi fari nú ekki fram fyrr en eftir áramót.
Maður er ótrúlega stoltur af stráknum, oft bognaði sálin en aldrei hlaut hún sömu örlög og fóturinn. Ég trúi því að menn séu komnir upp mestu brekkuna, núna taki við ferðalagið að koma sér aftur heim.

Engin ummæli:
Skrifa ummæli