Í fimmta sinn hélt maður upp á Akranes með barn í 7. flokki á fótboltamót. Ísak Máni fór þrisvar sinnum, Logi Snær einu sinni og nú var Daði Steinn að fara í fyrsta sinn. Núna heitir þetta Norðurálsmótið og hefur víst gert í einhvern tíma. Mótið sjálft hefur breyst talsvert síðan maður mætti þarna með Ísak 5 ára, stækkað mikið og er keyrt öðruvísi í gegn. Núna er styttra á milli leikja yfir daginn en á móti skapast stærra tómarúm yfir daginn sem þarf að brúa með einhverjum hætti. Til að mynda vorum við feðgar mættir á föstudagsmorguninn fyrir klukkan 10:00 til að ná skrúðgöngunni kl 11:00. Liðið hans Daða átti svo að mæta í liðsmyndatöku kl 14:30 en fyrsti leikur var ekki fyrr en 16:30. Þannig að augljóslega var maður orðinn frekar þreyttur á hangsinu þegar loksins var flautað til leiks. Þessi útfærsla gerir það frekar að verkum að liðið splittaðist upp í þessum löngu eyðum þannig að þetta var ekki alveg eins mikil liðssamvera eins og hérna áður.En svona af knattspyrnulegum málum þessa helgina þá gekk þetta svona la-la. Þeir voru settir inn sem B-lið en liðið hans Daða samanstóð aðallega af yngra árs drengjum þannig að maður bjóst alltaf við að þetta yrði smá brekka. Í það heila unnu þeir einn leik, gerðu 3 jafntefli og töpuðum 5. En stemmingin var samt alveg fín, Daði skoraði tvö mörk, tók einn leik í marki og var heilt yfir mjög flottur.
Annað var nokkuð gott bara, veðrið á föstudeginum var það sem ég kallaði stanslausan úða, frekar sérstakt. Það gerði það að verkum að það var frekar blautt yfir öllu en menn voru samt ekkert holdvotir. Laugardagurinn og sunnudagurinn voru bara fínir, smá rok á laugardeginum og svo var blautt yfir á sunnudeginum en ekkert sem maður kvartar yfir. Hef lent í talsvert verri málum en þetta.
Ef allt fer sem horfir þá mun sjötta og síðasta mótið hvað börnin okkar varðar næsta sumar. Allt líður þetta áfram á ógnarhraða.

Engin ummæli:
Skrifa ummæli