mánudagur, janúar 30, 2012

100 ár og körfubolti

Best að henda inn fréttum af nýliðinni helgi svona til að update-a þetta eitthvað. Laugardaginn fór nú í vinnuna hjá mér, ekki algengt svona um helgar. Það var byrjað með svokölluðum starfsdegi þar sem starfsmennirnir voru að fara ofan í saumana á fyrirtækinu, einhver gildavinna o.s.frv. Svo um kvöldið kíkti mannskapurinn, ásamt mökum, í heljarinnar teiti enda ekki á hverjum degi sem vinnustaðurinn heldur upp á 100 ára afmæli. Stofnað 1. janúar 1912 en sá dagur þykir víst ekkert sérstakur fyrir mikil hátíðarhöld. Teitið var haldið á skemmtistaðnum Esjunni Austurstræti 16, þar sem Reykjavíkurapótek var lengi, en Nathan & Olsen byggði þetta hús á sínum tíma og þótti viðeigandi að fagna þessu þarna. Mikil gleði enda örugglega ekki rosaleg mörg fyrirtæki á Íslandi sem hafa náð þessum áfanga.

Ísak Máni var að keppa í körfu á Flúðum á laugardeginum með 8. flokknum sem gekk víst bara fínt, hann fór reyndar fjölskyldulaus í það verkefni. Það hittist betur á hjá Loga Snæ en hann var að keppa á Póstmóti Breiðabliks á sunnudeginum, eftir hádegi meira að segja. Við kíktum á það, strákurinn stóð sig vel þótt ég segi sjálfur frá. Daði Steinn var þarna með í för og dundaði sér í búningunum sínum. Stemmingin var slík að strákarnir sem voru að keppa vildu endilega fá að hafa hann með í verðlaunaafhendingunni. Fór það svo að hann fékk líka medalíu og er því formlega (eða meira svona óformlega) farinn að safna þeim. Flottir gaurar.



Engin ummæli: