Reif mig loksins upp á rassgatinu í síðustu viku og smellti Börnum Loka í spilarann, eða tölvuna öllu heldur. Var búinn að forðast að heyra einstök lög og var í raun ekki búinn að heyra einn einasta tón áður en ég ýtti á play. Þannig var ég búinn að setja þetta upp, eitthvað rólegt kvöld ætlaði ég að setja upp heyrnatól og rúlla í gegnum þetta frá fyrsta tón til hins síðasta, svo sagan myndi nú njóta sín til fullnustu. Einhver bið varð á þessu rólega kvöldi og diskurinn í plastinu á meðan. En það hafðist s.s. að innbyrða söguna í þokkalegu næði.
Flottur diskur, annað verður ekki sagt en það verður samt að segjast að hann náði negldi mig ekki eins og raketta í rassinn eins og frumburðurinn. Kannski var uppbyggð eftirvænting of mikil, veit ekki en ég er að vinna í því að mjatla honum betur inn.
Sjáum hvernig það þróast.
Ljúkum þessu lélegasta bloggmánuði síðan skriftir hófust á þessu lítilræði.
fimmtudagur, nóvember 29, 2012
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
1 ummæli:
Hann verður bara betri og betri við hverja hlustun... Lag nr 2 greip mig fyrst en núna eru það lög nr 6 og 9 sem eiga hug minn allan ;) Annars er þessi gripur algjört dúndur.
Við förum saman á útgáfutónleikana í Rvk.
Skrifa ummæli