Staddur á dag á fótboltamóti í Laugardalnum, VÍS mót Þróttar. Svolítið síðan síðast, þ.e. á fótboltamóti yfir höfuð. Logi Snær hefur ekki verið að æfa fótbolta líklega síðan sumarið 2012 og maður því einskorðast við körfubolta- og fimleikamót síðustu misseri. Allra veðra von á Íslandi er ekki eitthvað sem ég hef saknað við fótboltamótin en þetta slapp fyrir horn í dag. Rigning á köflum en þakið á stúkunni á gervigrasvellinum í Laugardalnum var að gera heilmikið fyrir okkur. Öll fjölskyldan á svæðinu og hvað það varðaði þá slapp þetta líka tímalega séð, þetta var svona temmilega langt áður en Daði og Ísak voru orðnir leiðir á þessu hangsi.
Logi var flottur í dag, spilaði einn leik í marki og þrjá sem útileikmaður. Var reyndar frekar fúll yfir því hversu mikið hann var látinn spila sem aftasti varnarmaður og þar var ekki vel séð ef menn fóru fram yfir miðju. Sem er ekkert rosalega vinsælt þegar maður er 10 ára og er að spila fótbolta. Hann er í 6. flokki og stóra sumarmótið er í Vestmannaeyjum núna í lok júní. Kappinn er bara nýbyrjaður að æfa aftur og það hefur nú ekki komið til raunverulegrar umræðu um að hann sé að fara þangað. Kemur allt í ljós.
|
Tilþrif í markinu |
Engin ummæli:
Skrifa ummæli