Daði Steinn: "Pabbi, hver byggði húsið okkar?"
Pabbinn: "Það voru einhverjir karla ... og konur."
Daði Steinn: "Konur!"
Pabbinn: "Já, konur. Geta þær ekki byggt hús?"
Daði Steinn: "Þær eru bara að elda kjöt."
Maður er greinilega ekki alveg með þetta uppeldi á hreinu. Það væri kannski hægt að fyrirgefa manni ef þetta væri frumburðurinn en þetta er víst 3ja eintakið. Ekki gott.
mánudagur, ágúst 20, 2012
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
3 ummæli:
Hahahahaha snilld
Hmmmm
Þetta er nú fyndið í ljósi þess að hann hefur örugglega séð mömmu sína oftar við lagfæringar en pabba sinn :-)
Skrifa ummæli