fimmtudagur, febrúar 28, 2013
Hún er alveg með´etta
miðvikudagur, febrúar 20, 2013
mánudagur, febrúar 11, 2013
Menning að ég tel
Það var naumast að menn voru menningarlegir þessa helgina en sótti, bæði föstudags- og laugardagskvöld, einhverja viðburði sem sumir hverjir flokka sem ákveðna menningu en eflaust einhverjir aðrir sem myndu flokka þetta bæði sem rakna ómenningu.
Fór á föstudeginum á uppistand hjá Mið-Ísland hópnum. Starfsmannafélagið í vinnunni var að gera og græja og ég tók Ísak Mána með mér. Það var bara fínt, saknaði reyndar Ara Eldjárns sem var í öðrum verkefnum í Svíþjóð að mig minnir en Þorsteinn Guðmundsson mætti sem staðgengill. Björn Bragi kom svo skemmtilega á óvart, af einhverjum ástæðum hafði ég ekki búist við miklu af honum. Svona geta fyrirfram fordómar komið í bakið á manni. Giggið haldið í Þjóðleikshúskjallaranum, díses kræst, örugglega einhver 16-18 ár síðan maður var þarna síðast.
Á laugardeginum var hinsvegar alvaran, Skálmöld með útgáfutónleika vegna gripsins Börn Loka. Tommi frændi var búinn að tryggja mér miða fyrir einhverju og mætti í bæinn með einkasoninn og Gústa bróður sinn. Var að rifja upp þegar við Tommi fórum á útgáfutónleikana á fyrstu plötu Skálmaldar fyrir rétt tæpum tveimur árum, sá dagur var rakinn í orðum -HÉR-. Fyndið hvað það var mikil tilviljun að maður rataði á þessa tónleika þarna 2011. Talsverð breyting að fara úr Tjarnarbíó 2011 og yfir í Háskólabíó 2013 en bara gott mál. Ég er á því að fyrri gripurinn sé betri, af einhverjum ástæðum nær hann betur til mín. En með það sama lofsyng ég þennan seinni grip, þetta er algjört meistarastykki, sem segir kannski meira hvar ég set fyrri diskinn þeirra. Tónleikarnir voru algjört æði, umgjörðin og metnaðurinn sem er lagður í þetta skín svo í gegn að það hálfa væri yfirdrifið nóg. Sem fyrr er söguformið skemmtilega notað, algjört listaverk. Eftir að þeir voru búnir að rúlla í gegnum plötuna var skellt í smá hlé áður en nokkur aukalög af Baldri voru skellt með sem kaupauki, þvílíkt og annað eins.
Fann hérna tvær ræmur af kvöldinu á youtube sem einhverjir góðir menn er að miðla til annarra, gaman að þessu:

laugardagur, janúar 26, 2013
Í London
Var í London um síðustu helgi. Og þegar menn eru í London þá er farið á fótboltaleiki.
Út á föstudegi og gist á Chelsea hótelinu á Stamford Bridge, þetta fer að verða vandræðalegt. Ræs snemma á laugardagsmorgni því menn þurftu að ná lestinni til Liverpool en ferðinni þann daginn var heitið á leik Liverpool - Norwich á Anfield. Karlinn aldrei komið þangað og talsverður spenningur í að upplifa þessa margumtöluðu, þú-röltir-aldrei-einn stemmingu sem átti víst að vera alveg andstæðan við asísku-myndavéla-túrista stemminguna sem er víst gjarnan í Old Trafford. Lestarferðin tók rúma tvo tíma, margir að fara á leikinn miðað við klæðaburðinn á stórum hluta mannskapsins. Við komuna í Liverpool var hoppað upp í taxa og beint upp á völl enda var áætlunin að reyna að soga í sig eins mikla stemmingu og hægt væri. Tróðum okkur inn á pöbbinn þarna á móti vellinum, Park minnir mig að hann heitir. Róleg stemming þegar við komum en þetta fór að hressast þegar nær dró leik. Bjór í plastglösum og maður var með handakrikann á næsta manni alveg í andlitinu, alveg eins og þetta á að vera. Einhverjir á vegum íslenska Liverpoolklúbbsins á svæðinu, hvar hittir maður ekki Íslendinga?
Leikurinn sjálfur var flott skemmtun að því leytinu til að heimamenn voru miklu betri og gestirnir gátu ekki rassgat, 5:0 öruggur sigur. M.a. Suarez og Steven Gerrard með flott mörk og nýji maðurinn, Daniel Sturridge með mark í sínum þriðja leik í röð og í fyrsta sinn í byrjunarliðinu á Anfield. Varð reyndar fyrir smávonbrigðum að því leytinu til að ég var alltaf að bíða eftir söngnum úr stúkunni undir lok leiksins en hann kom aldrei. Hann kom reyndar fyrir leikinn, svona yfir undirspili út hátalarkerfinu en ég vonaðist til að heyra þetta alveg hreint úr stúkunni. Það fór þannig að upp úr 80. mínútu fór straumur fólks að láta sig hverfa, sem mér finnst alltaf jafn dapurt, alveg sama hvar ég er. Eftir leikinn var stoppað á einum pöbb svona til að ná eftir-leiks stemmingunni áður en haldið var upp á lestarstöðin aftur því planið var að koma sér hið snarasta í menninguna aftur.
Í lestinni heim sátu hjón frá Norwich með 12 ára son sinn með sér við hliðina á okkur og það var eitthvað verið að spjalla. Maður gat ekki annað en dáðst að þessu liði, ársmiðahafar hjá Norwich og fara á mjög marga útileiki líka. Þau þurftu að taka tvær lestir sem hvor um sig tók rúma tvo tíma, aðra leiðina! Í grunninn tók t.d. þessi leikur þau allan laugardaginn og til þess eins að horfa á sína menn skíttapa, þeir fengu held ég einhver tvö hálffæri í öllum leiknum. Í vagninum okkar var sjoppan staðsett, þar sem hægt var að kaupa veitingar. Þegar lestarferðin er eitthvað á veg komin birtist ungur maður í vagninum okkar, merktur Norwich frá toppi til táar. Hann vakti svo sem enga athygli hjá mér enda góður slangur af mannskap í gulum og grænum fötum í lestinni. Hjónin frá Norwich tóku hinsvegar kipp í sætinu og í ljós kom að þarna var mættur leikmaður Norwich, Pilkington að nafni. Ég var nú ekki alveg að kveikja í upphafi en einn af samferðarmönnum mínum rifjaði það upp að þessi drengur skoraði víst sigurmark Norwich á móti Manchester United fyrr á tímabilinu. Það má sjá -HÉR- til upprifjunar. Það kom svo í ljós að einhverjir 4-5 leikmenn Norwich voru í lestinni. En stemmingin varð svo ansi sérstök þegar fór að hvissast út að sjálfur Steven Gerrard, leikmaður Liverpool, væri líka í lestinni. Ég verð að viðurkenna að ég var ekki alveg að kaupa það til að byrja með, hvað í andskotanum svona kappi væri að dröslast í almenningssamgöngum, tala nú ekki um í fullri lest af fótboltabullum. En þegar hluti af ferðafélögum mínum voru búnir að rölta fram í Saga Class vagninn og staðfesta að þarna væri kappinn þá gat ég ekki annað en tékkað á þessu. Eftir að hafa labbað í gegnum endalaust af vögnum þá var komið í lokavagninn og eftir að hafa labbað framhjá þessum áðurnefnda hluta Norwich-liðsins, sem ég þekkti nú hvorki haus né sporð á, þá sat Hr. Liverpool þarna innan um einhverjar stífmálaðar guggur og var frekar var um sig. En ég lét mig samt hafa það enda þénaði hann líklega meira á þessum rúmum tveimur tímum sem lestarferðin tók heldur en ég næ að nurla saman á heilu almanaksári. Tók í spaðann á honum og lét fylgja sögunni að ég væri frá Íslandi en fór ekkert út í hverja ég styddi í enska boltanum. Kappinn var ekki til í myndatöku á þessum tímapunkti, en sagðist vera meira en klár í það þegar lestarferðinni lyki. Ég var nefnilega svo mikið að fara hitta hann þá, eða þannig. En hann var alveg kurteis og allt það, helst að D&G guggurnar væru með hálfgerða skeifu yfir þessum stöðuga straumi af fólki. Ég stoppaði nú aðeins í þessum vagni, átti m.a. spjall við Breta sem hafði komið til Íslands í dýrari týpuna af steggjapartýi fyrir einhverjum árum. Á meðan ég sat þarna komu einhverjir á röltu þarna þannig að eitthvað þurfti Stevie G að spjalla við gesti og gangandi. Ég ákvað samt að láta duga að hafa tekið í spaðann á kappanum, myndin verður að bíða þangað til næst.
Á sunnudeginum var svo síðari leikurinn, Chelsea - Arsenal á Brúnni. Hádegisleikur en stutt að fara af hótelinu. Mikil stemming í loftinu enda tvö stór Lundúnarlið. Leikurinn endaði með 2:1 sigri heimamanna, flottur leikur. Annar kóngur á markaskónum af vítalínunni, Lampard sjálfur, það má sjá -HÉR-. Einhverjir Arsenal aðdáendur sátu fyrir ofan okkur, Chelsea megin í stúkunni, en þeir komu upp um sig með því að fagna þegar Walcott minnkaði muninn og allt varð vitlaust. Her öryggisvarða mætti með það sama og henti þeim út. Í kjölfar látanna voru Chelsea stuðningmenn farnir að rífast líka, einum fannst greinilega dræmt tekið undir þegar hann reyndi að starta hópsöng með lagi sem hófst: "Stand up if you hate Tottenham...", svona eitthvað annarra-Lundúnaliða-diss. Það endaði með því að honum var líka hent út á bílastæði. Hérna erum við að tala um að ekki nokkur hræða var farin að láta sig hverfa snemma í þessum leik, þ.e. ekki nema þeim sem var hent út.
Eftir leikinn var húrruðum við okkur á næsta pöbb til að taka Tottenham - Manchester United á skjá. Það höfðu reyndar verið smá pælingar um að reyna að skipta út Chelsea - Arsenal miðunum og reyna að fara í staðinn á White Hart Lane en eftir einhverjar eftirgrenslan þá voru of mikið af "ef" og "kannski" í þeirri heildarmynd. Enda hefði maður víst þurft að bíta fast í handabakið á sér ef maður hefði þurft að sitja meðal Tottenham aðdáenda og horfa á þá skora þetta jöfnunarmark þeirra í uppbótartíma.
Núna fer ég að tína tölfræðina mína saman, enska-fótbolta-leikja-brölt. Ég held að það hafi verið áramótaheit fyrir 2012, en ennþá er ég ekki byrjaður að grafa þetta allt upp. Þetta hlýtur að vera komið í einhverja 10 leiki eða svo.
Ég ætlaði nú að skreyta þennan pistill með nokkrum fátæklegum myndum en því miður tók 8 ára gamli MacBook Pro-inn minn upp á því að hætta að virka núna um helgina, skömmu eftir að ég var búinn að hlaða inn á hana nokkrum myndum. Ef guð og lukka lofar, ásamt starfsmönnum verkstæðisins hjá Epli.is, fer hún í gang aftur og ég get hent inn smá myndasýningu í kjölfarið.
Ég myndi samt ekkert vera að bíða eftir myndinni af mér og Gerrard...

miðvikudagur, janúar 23, 2013
Ferming nr. 1
Jæja, þetta er ekki nokkur frammistaða. Tæpar 3 vikur síðan stórviðburður var og ekki bofs á þessum miðli fyrr en seint um síðir.
Stórviðburður já, frumburðurinn var fermdur þann 6. janúar síðastliðinn, á þrettándanum. Ekki hefðbundinn tími en stundum er allt í lagi að hugsa út fyrir kassann og fylgja ekki bara straumnum eins og hinir. Ísak Máni fór að mæta til prestsins í haust eins og lög og reglur gera ráð fyrir á þessum aldri og allt leit eðlilega út. Við vorum farin að sirka út fermingardaginn 7. apríl þegar karlinn fékk allt í einu hugmynd. Villi og co á landinu um áramótin (mínus Tinna, sem var sárt saknað) og því ekki að reyna að ná eins góðri heildarmætingu og hægt væri í þennan viðburð þótt það þýddi smávægilegar tilfæringar? Ég fékk staðfestan brottfaratíma hjá Malaví genginu og hélt með það til prestins til að sjá til hvort hann væri tilkippilegur í smá snúning á þessu. Já, hann var svo sem alveg að kaupa mín rök en gat þó skiljanlega ekki kvittað undir það að fermingarfræðslan frá áramótum og fram undir vorið væri óþarfi. Var því samið um það að drengurinn yrði að klára alla sína messu- og utanbókarlærdómsskyldu fyrir áramót og fengi svo að fermast 6. janúar en á móti yrði að klára fermingarfræðsluna með hópnum. Eftir að þetta tilboð var lagt undir Ísak Mána, sem var meira en klár í þetta, var kvittað undir samninga.
Fermingin sjálf var mjög fín. Fáir í kirkju og við gátum bara mætt með þá sem við vildum og mannskapurinn plantaði sér bara á fremstu bekkina tvo eins og konunglegur aðall. Þetta var allt á persónulegum nótunum en eins og menn geta getið sér til um þá var hann einn að fermast þennan dag. Mamman og pabbinn fengu sitt hlutverk í upplestri á ritningarlestri svona til að poppa þetta upp. Eftir góðan og rúmlegan klukkutíma var haldið niður í vinnu hjá undirrituðum en þar var veislan haldin. Mæting var alveg hreint fín, um 50 manns eins og ráð var gert fyrir. Eftir salt- og reykjarsmurningu síðustu dagana þarna á undan var talið réttast að bjóða upp eitthvað léttara og var kjúklingasúpa með mexíkönsku yfirbragði fyrir valinu, ásamt einhverjum kjötbollum og lambapottrétt svona ef menn legðu ekki í súpuna. Eftir var súkkulaðikaka með frönsku ívafi og kaffi.
Held að þetta hafi tekist bara bærilega, a.m.k. var ekki hægt að fá annað upp úr fermingardrengnum og gaman að hitta marga ættingja sem var komið alltof langt síðan síðast.

| Ísak Máni og Gísli Jónasson prestur |

| Súpan þótti vel heppnuð |
| Og kakan var ekki síðri |
| Fermingardrengurinn |
| Ekki á hverjum degi að þetta lið er á sama stað |
miðvikudagur, janúar 02, 2013
2013 mætt
Enn einum áramótunum lokið sem þýðir að enn eitt nýja árið er gengið í garð. Dvöldum upp í Æsufellinu á meðan vistaskiptin gengu yfir, enda þau malavísku á svæðinu. Sporðrennt var velheppnuðum kalkúni ásamt saltkjöti og baunum eins og venjan er orðin og Toblerone ísinn hennar Dagmarar fékk svo fullt hús stiga í lokin.
Hefðbundið annars, sem er hið besta mál. Eitthvað skotið upp eins og gengur og gerist, alltaf finnst manni þetta jafnmikil klikkun þegar maður stendur þarna á hæðinni og horfir yfir sviðið. Íslendingum finnst ekki leiðinlegt að sprengja eins og nokkrar bombur.
Gamlársdagurinn hafði nú annars byrjað hressilega, Sigga tók þátt í Gamlárshlaupi ÍR í annað skiptið í röð. 10 km í svona fáránlegum kulda að það er ekki hægt að heimfæra þetta niður á nokkur eðlilegheit. En í mark kom kellan á fínum tíma, bið að afsaka myndgæðin en snjallsíminn virkar ekki vel í mínus fjórum. Ekki ég heldur ef út í það er farið. Skyrta og bindi var víst einkennisklæðnaður ÍR-inga þetta árið. Annars sá ég jólasveininn, nokkrar Línu Langsokkur, gaur í jakkafötum og Thing 1 og Thing 2 sem mér fannst nokkuð vel heppnað. Skrítnastur fannst mér eiginlega fýrinn sem var í hlýrabolnum og hlaupastuttbuxunum en hvað veit ég.
Hefðbundið annars, sem er hið besta mál. Eitthvað skotið upp eins og gengur og gerist, alltaf finnst manni þetta jafnmikil klikkun þegar maður stendur þarna á hæðinni og horfir yfir sviðið. Íslendingum finnst ekki leiðinlegt að sprengja eins og nokkrar bombur.
| Ísak Máni og Daði Steinn með allt á hreinu |
| Logi Snær eitthvað hissa yfir þessu öllu |
mánudagur, desember 31, 2012
Plankaárinu lokið!
Ótrúlegt en satt þá hafðist þetta hjá mér og Ísaki Mána. Plankaæfing á hverjum degi allt almanaksárið 2012 sem voru víst heilir 366 dagar. Á hótelherbergi út í löndum, útilegu á Suðurlandinu, í Grundarfirði, í Baulumýri, á Suðureyri svo eitthvað sé nefnt, alltaf drullaðist maður til að klára þetta. Svo til upprifjunar á þessu þá má sjá lýsingu á þessari æfingu hérna:
Það verður að segjast að það kom mér á óvart að mér fannst ég ekki mikið auka "plankaþolið" hjá mér, þetta var einhvern megin alltaf jafn erfitt. Kannski það segi mér um líkamsþyngdina hjá mér en eitthvað annað.
Hvað næst? Það verður a.m.k. ekki nein ein æfing sem verður gerð dagleg á næsta ári, þetta var orðið meiri kvöl en hitt undir lokin. Og það verður enginn planki gerður á morgun, það er alveg á tæru.

miðvikudagur, desember 26, 2012
Jólin 2012
Jólastússið gekk heilt yfir á bærilegastan hátt þetta árið. Hefðbundin aðfangadagur á þessum bænum, ég byrjaði á því að fara í vinnuna til rétt rúmlega 11:00. Hef val um að mæta á aðfangadag eða gamlársdag og hef haft það að venju að velja aðfangadaginn og finnst það bara fínt. Geri svo sem ekki margt djúpstætt, en tek aðeins til í tölvupóstinum og þessháttar. Ég þurfti aðeins að koma við í Elko áður en ég myndi renna heim og hélt að það yrði easy-peacy verkefni. Ekki alveg svo, eftir stutt stopp við hillurekkana til að finna það sem ég var að leita að tóku rúmlega 15 mínútur í biðröð á kassa við. Magnað, en ég get víst ekki fussað yfir því þar sem ég var þátttakandi í vitleysunni.
Skytturnar þrjár voru mjög slakir og fínir, auðvitað nettur spenningur en allt innan skynsemismarka. Hamborgarahryggurinn úr Fjarðarkaup rann ljúflega niður og svo þurfti víst að ganga frá eftir matinn áður en farið var í aðalatriðið. Ekki verður sagt annað en að allir hafi verið sáttir með sinn hlut, sem er alltaf kostur. Miðað við það sem kom undan jólapappírnum hefði eitthvað annað líka verið hálfskakkt.
Fórum svo í hangikjötið í Bröttuhlíð á jóladag. Þar var rúllað um á meltunni í einhverja tíma á milli þess sem maður kyngdi hangikjötinu, jólaísnum og döðlukökunni. Líkaminn hélt nú áfram störfum þrátt fyrir þetta allt, sem kemur manni alltaf hálfpartinn á óvart á þessum árstíma.
Verð að viðurkenna almenna leti í dag, börnin náðu u.þ.b. 30 mínútum úti í kuldanum í dag, sú súrefnisinntaka, þ.e. af fersku hráefni, varð að duga. Ég straumaði Man Utd - Newcastle og sá ekki eftir því, Litla baunin með sigurmark þegar klukkan sló í 90 mínútur og 4:3 sigur staðreynd. Sannaðist hið fornkveðna - Football, bloody hell...
Var svo rétt með meðvitund þegar hin árlega frétt um alla þá sem fóru í ræktina, annan í jólum, kom á skjáinn. Mér finnst hún orðin svolítið lúin ef ég á að vera alveg heiðarlegur. Ég hristi þó af mér slenið og tók létta hreyfingu inn í eldhús til að athuga hvort ég gæti ekki æft kjálkana enn betur.
Það er hægt að tala um Quality street-ið sem var keypt fyrir jólin í þátíð núna.

| Yfirmaður pakkaúthlutunarnefndar |
| Daði Steinn og mamman |
| Spennan að bera menn ofurliði |
| "Díses, þið eruð ekki í lagi" |
| Bæði betra? |
Fórum svo í hangikjötið í Bröttuhlíð á jóladag. Þar var rúllað um á meltunni í einhverja tíma á milli þess sem maður kyngdi hangikjötinu, jólaísnum og döðlukökunni. Líkaminn hélt nú áfram störfum þrátt fyrir þetta allt, sem kemur manni alltaf hálfpartinn á óvart á þessum árstíma.
Verð að viðurkenna almenna leti í dag, börnin náðu u.þ.b. 30 mínútum úti í kuldanum í dag, sú súrefnisinntaka, þ.e. af fersku hráefni, varð að duga. Ég straumaði Man Utd - Newcastle og sá ekki eftir því, Litla baunin með sigurmark þegar klukkan sló í 90 mínútur og 4:3 sigur staðreynd. Sannaðist hið fornkveðna - Football, bloody hell...
Var svo rétt með meðvitund þegar hin árlega frétt um alla þá sem fóru í ræktina, annan í jólum, kom á skjáinn. Mér finnst hún orðin svolítið lúin ef ég á að vera alveg heiðarlegur. Ég hristi þó af mér slenið og tók létta hreyfingu inn í eldhús til að athuga hvort ég gæti ekki æft kjálkana enn betur.
Það er hægt að tala um Quality street-ið sem var keypt fyrir jólin í þátíð núna.
mánudagur, desember 24, 2012
Gleðileg jól
Þar sem nýjasta eintakið var algjörlega ófáanlegur til að taka þátt í myndatökunni í jólateitinu hjá Nathan þetta árið, eitthvað sem tókst svona glimrandi vel í fyrra, þá er víst ekki annað hægt en að henda inn annarri mynd líka sem náðist þegar beðið var eftir því að klukkan yrði sex.
föstudagur, desember 21, 2012
Skottúr á Snæfellsnes og tónleikar
Tók bíltúr í Stykkishólm á föstudaginn fyrir viku. Körfubolti hjá börnunum, hvað annað? Ísak Máni að spila í bikarkeppni KKÍ í Stykkishólmi með 9. flokknum hjá ÍR. Í fyrsta skipti að spila í Stykkishólmi og einnig að spila í bikarkeppni KKÍ í fyrsta sinn. Skemmtilegt að það hafi hitt á fæðingardaginn
hjá afa hans. Leikurinn sjálfur gekk nú
ekki alveg nógu vel en það er bara svoleiðis stundum.
Jólatónleikar svo hjá Ísaki Mána á laugardeginum en að öðru leyti rólegt bara.
Man ekki hvort ég hef minnst á það á þessum miðli en ég held ég geti sagt að keppnisþátttaka mín í körfubolta hafi hafist og lokið í þessu húsi, þ.e. með einum leik. Það hlýtur að hafa verið eitthvað skóladæmi því það eina sem ég man að ég skoraði ekki körfu en fékk samt tvö vítaskot, það fyrra var air-ball en hið síðara rataði ekki niður þrátt fyrir einhvern dans ofaná hringnum. Meira varðandi þetta man ég ekki.
Við höfðum nú ekki tök á því að stoppa í firðinum fagra í þessari ferð þar
sem þetta var bara farið fram-og-til-baka, plús að við Ísak Máni vorum með
þjálfarann og tvo aðra leikmenn með okkur í bílnum, veit ekki hvernig þeir
hefðu tekið í heimsókn til Eygló ömmu. Það verður að vera bara næst.
Jólatónleikar svo hjá Ísaki Mána á laugardeginum en að öðru leyti rólegt bara.
Endað svo sunnudaginn á jólatónleikum Baggalúts í
Háskólabíói, þar lék ég hlutverk Tinnu Rutar sem sá sér ekki fært að mæta á
skerið þessi jólin frá Kanada en Villi og co höfðu verslað miða fyrir hana. Ég veit ekki í hve mörg ár þeir hafa haldið jólatónleika en þetta var alla vega í fyrsta sinn sem ég fer. Skemmti mér vel, enda drengirnir alveg með þetta og stemmingin fín. Aldrei að vita að maður skelli sér að ári verði það í boði, gæti alveg séð Loga Snæ í góðum gír svona aðeins eldri. Prógrammið var þétt hjá þeim, jafnvel einhverjir slagarar sem hljómuðu ekki. Ég saknaði mest þessara tóna:
sunnudagur, desember 09, 2012
Íþrótt án snertingar
Jólahlaðborð með vinnunni minni fyrir rúmri viku, föstudagskvöld nánar tiltekið. Mæting kl 19:00 og planið var svona: Ísak Máni á körfuboltaæfingu til kl 19:00 í Breiðholtsskóla og átti að bruna heim strax eftir hana, þar átti að vera pizza klár fyrir gríslingana þrjá svo undirritaður og frú gætu þá hent sér út á meðan Ísak Máni hefði yfirumsjón yfir restinni af kvöldinu heima fyrir.
Allt hófst samkvæmt áætlun, ég og Logi Snær fóru og sóttum pizzuna á meðan Sigga var að græja sig. Ég sá fram á að þetta myndi allt saman smella, yrði komin tímalega heim með pizzuna og gæti skellt mér í betri fötin, allt á flottum tíma. Þegar ég er að leggja bílnum í stæðið heima með rjúkandi pizzuna fæ ég símtal. Körfuboltaþjálfarinn hans Ísaks. Drengurinn kominn með skurð á höfuðið og ég þarf að gera svo vel að sækja hann asap. Logi Snær stökk inn með pizzuna á meðan ég skutlaðist eftir Ísaki. Þegar upp í íþróttahús var komið beið blóðugur Ísak eftir mér. Ég fékk þær útskýringar á málinu að þetta gæti gerst þegar vörn mætti sókn, í þessu tilfelli voru tveir aðilar með ólíka sýn á það í hvaða átt boltinn ætti að fara og þetta varð útkoman. Eftir stutt mat á stöðunni var drengnum skrölt heim og inn á klósett fyrir frekara mat. Ég sá fyrir mér föstudagskvöld á slysó með tilheyrandi stemmingu. Matið leiddi hinsvegar af sér að meira um skeinu en skurð væri að ræða og ekki væri lengur að blæða, tilgangur vettfangsferðar upp á slysó væri því lítill.
Það var því tekin sú ákvörðun um að halda upprunarlegu plani, foreldrarnir færu á jólahlaðborðið og Ísak Máni sæi um bræður sína í einhverja klukkutíma.
Það væri hægt að orða það þannig að áfengis- og skemmtanasjúkir foreldrarnir hefðu tekið ákvörðun um að láta ekkert stoppa sig, skítmixað höfuðumbúðir um sárið á drengnum örfáum mínútum áður en hann var settur yfir sem ábyrgðaraðili heimilisins. Hann hafi síðan fengið sú fyrirmæli að hringja eftir aðstoð ef blóðið færi að frussast aftur úr hausnum á honum eða ef honum fyndist hann vera að missa meðvitund vegna höfðuáverkanna. Ég vill meina að það væru stórlegar ýkjur. Enda fór þetta allt vel og allir komu heilir út úr þessu.
Skál.
Allt hófst samkvæmt áætlun, ég og Logi Snær fóru og sóttum pizzuna á meðan Sigga var að græja sig. Ég sá fram á að þetta myndi allt saman smella, yrði komin tímalega heim með pizzuna og gæti skellt mér í betri fötin, allt á flottum tíma. Þegar ég er að leggja bílnum í stæðið heima með rjúkandi pizzuna fæ ég símtal. Körfuboltaþjálfarinn hans Ísaks. Drengurinn kominn með skurð á höfuðið og ég þarf að gera svo vel að sækja hann asap. Logi Snær stökk inn með pizzuna á meðan ég skutlaðist eftir Ísaki. Þegar upp í íþróttahús var komið beið blóðugur Ísak eftir mér. Ég fékk þær útskýringar á málinu að þetta gæti gerst þegar vörn mætti sókn, í þessu tilfelli voru tveir aðilar með ólíka sýn á það í hvaða átt boltinn ætti að fara og þetta varð útkoman. Eftir stutt mat á stöðunni var drengnum skrölt heim og inn á klósett fyrir frekara mat. Ég sá fyrir mér föstudagskvöld á slysó með tilheyrandi stemmingu. Matið leiddi hinsvegar af sér að meira um skeinu en skurð væri að ræða og ekki væri lengur að blæða, tilgangur vettfangsferðar upp á slysó væri því lítill.
![]() |
| Rót vandans |
Það væri hægt að orða það þannig að áfengis- og skemmtanasjúkir foreldrarnir hefðu tekið ákvörðun um að láta ekkert stoppa sig, skítmixað höfuðumbúðir um sárið á drengnum örfáum mínútum áður en hann var settur yfir sem ábyrgðaraðili heimilisins. Hann hafi síðan fengið sú fyrirmæli að hringja eftir aðstoð ef blóðið færi að frussast aftur úr hausnum á honum eða ef honum fyndist hann vera að missa meðvitund vegna höfðuáverkanna. Ég vill meina að það væru stórlegar ýkjur. Enda fór þetta allt vel og allir komu heilir út úr þessu.
Skál.
| Barnapían klár |
fimmtudagur, nóvember 29, 2012
Börn Loka
Reif mig loksins upp á rassgatinu í síðustu viku og smellti Börnum Loka í spilarann, eða tölvuna öllu heldur. Var búinn að forðast að heyra einstök lög og var í raun ekki búinn að heyra einn einasta tón áður en ég ýtti á play. Þannig var ég búinn að setja þetta upp, eitthvað rólegt kvöld ætlaði ég að setja upp heyrnatól og rúlla í gegnum þetta frá fyrsta tón til hins síðasta, svo sagan myndi nú njóta sín til fullnustu. Einhver bið varð á þessu rólega kvöldi og diskurinn í plastinu á meðan. En það hafðist s.s. að innbyrða söguna í þokkalegu næði.
Flottur diskur, annað verður ekki sagt en það verður samt að segjast að hann náði negldi mig ekki eins og raketta í rassinn eins og frumburðurinn. Kannski var uppbyggð eftirvænting of mikil, veit ekki en ég er að vinna í því að mjatla honum betur inn.
Sjáum hvernig það þróast.
Ljúkum þessu lélegasta bloggmánuði síðan skriftir hófust á þessu lítilræði.

sunnudagur, október 28, 2012
Nýreynsluþrenna
Karlinn búinn að vera nokkuð þéttsetinn síðustu rúmu vikuna og nýjar lífsreynslur að detta inn í bankann.
Skrapp í Bláa Lónið með nokkrum vinnufélögum undir lok þarsíðustu viku. Í fyrsta sinn í Bláa Lónið. Kom mér á óvart að það var allt stappað af útlendingum, um miðjan október. Annars var ég nú ekkert frá mér numinn, missti mig ekkert í hvíta skítinn og get ekki sagt að ég hafi séð stórmun á húðinni á eftir.
Skrapp svo á sunnudaginn fyrir viku til Parísar í vinnuferð. Í fyrsta sinn í París. Frá túristasjónarhorninu var leiðinlegast að þetta voru 3 dagar inní einhverri sýningarhöll og því á ég enn eftir að bera Eiffelturninn og Sigurbogann augun. Hótelið var reyndar nálægt Notra Dame kirkjunni þannig að það var hægt að horfa á þá byggingu en ekki náði ég að kíkja inn. Maður verður bara að taka þetta síðar þegar betur liggur við. Snéri heim á miðvikudagskvöldi, frekar lúinn.
Þurfti svo að taka að mér annað bílstjórahlutverkið fyrir körfuboltaliðið hjá Ísaki Mána og félögum í gær, til Hvammstanga. Í fyrsta sinn á Hvammstanga. Þeir unnu alla sína leiki, lítið annað um það að segja en held ég sé ekkert á leiðinni aftur á Hvammstanga á næstunni svona ef ég kemst hjá því. Mikið var gott að komast heim í dag, tímanlega til að horfa á United vinna Chelsea en það verður að viðurkennast að ég var hálfdottandi fyrir framan kassann þrátt fyrir mikla dramantík.

| Drengurinn að reyna að nota máttinn til að ná boltanum? |
laugardagur, október 20, 2012
Tunguliprir
Engin pressa svo sem en ég sé svipaða takta hjá þessum tveimur. Það er ljóst frá mínum bæjardyrum séð að þeir eiga eitthvað sameiginlegt.
miðvikudagur, október 17, 2012
3ja ára, hálskirtlalaus og á læknadópi
Ég fór með Daða Stein í hálskirtlatöku fyrir tæpri viku, síðasta föstudag. Ég var nokkuð rólegur yfir þessu og þetta gekk þokkalega til að byrja með, fyrir utan að hann var ekki að fíla fötin sem honum voru úthlutuð og lét þá skoðun hávært í ljós. Hann vaknaði fljótlega eftir aðgerðina og var ekkert spes en náði að sofna aftur í ca 2 tíma og var þokkalegur eftir þann lúr. Hann var það þokkalegur, þrátt fyrir að vera alveg glær í framan, að við náðum að stoppa í búð á leiðinni heim og versla okkur íspinna og helstu nauðsynjar. Mér fannst hann alveg ótrúlega sprækur þegar heim var komið, datt meðal annars í einhverjar íþróttaálfaæfingar og ég hugsaði með mér að hann kæmi til með að verða alveg geðveikur á að hanga heima í rúma viku. En síðan hefur þetta nú verið meiri lasleiki en hitt, verkjalyf í bossann með reglulegu millibili hefur reynst lífsnauðsynlegt til að halda honum gangandi og greyið er alveg í móki hérna á köflum. Það var ekki til að rífa stemminguna upp á aðrar hæðir þegar hann vaknaði síðastliðna nótt, skreið upp í til okkar og eftir nokkrar mínútur kom í ljós, þegar ljós voru kveikt að það var farið að blæða talsvert úr honum og allir og allt orðið blóði drifið. Það var gekk nú yfir á skömmu tíma sem betur fer. Það þarf ekkert að koma á óvart að heimilishaldið er frekar mikið úr skorðum og ofan á allt þetta er svona rúmlega að gera í vinnunni hjá vinnandi aðilum hérna á heimilinu.
sunnudagur, september 30, 2012
Helgin
Karlinn í einstæða hlutverkinu þessa helgina, me-me á kantinum hjá kerlu og það verður að segjast að það var þokkalegasta keyrsla þessa helgina. Byrjaði á því að taka smátíma á föstudagskvöldinu niðri í vinnu og kjósa nýtt fólk í okkar flotta starfsmannafélag, með indverskum mat á boðstólnum.
Körfuboltaæfing hjá Loga Snæ kl 09:00 á laugardagsmorgninum en ég hafði víst stillt klukkuna á 07:45. Það reyndist óþarfi þar sem minnsta verkjaraklukkan skreið upp í til mín 06:45 og var eitthvað að spá í lífið og tilveruna. Eftir körfuboltaæfinguna réðst ég í það verkefni að losa eldhúsofninn úr innréttingunni hjá okkur. Hann hefur átt það til að vera hálfdularfullur og þegar hann tók upp á því að senda stóran hluta framhliðarinnar beint í gólfið þegar heimilsfaðirinn var að möndla pizzur fyrir einhverjum dögum ákváðum við að segja stopp. Sú framhlið fór í trilljón parta og eftir ítarlegt sóp og fjórar umferðir með rygsugunni var orðið gangfært aftur í eldhúsinu. YouTube kom mér í gegnum ofnalosunina án mikilla vandkvæða og ég kláraði málið með því að horfa á eftir honum ofaní gáminn á Sorpu. Ég vona að við verðum búin að leysa þetta fyrir jól en þessi hluti innréttingarinnar er ekki alveg hefðbundin varðandi hlutföll, eins og við komumst að þegar við versluðum okkur uppþvottavél hérna um árið. Ég finn lykt af skítamixi allan daginn þar sem eflaust mun ganga illa að finna græju sem passar í gatið. Það kemur í ljós, kannski efni í nýjan pistill. Við verðum bara að grilla á meðan.
Ísak Máni á körfuboltaæfingu líka þarna á laugardeginum og við hinir fórum að kaupa í matinn ásamt því að stoppa í Elko svo ég gæti rölt í gegnum ofnadeildina. Verð að segja að ég stoppaði lengur í flatskjádeildinni...
Sunnudagurinn hófst á Hausthátíð í Breiðholtskirkju þar sem fermingarbörnin léku rullur. Fjölskyldustund í kirkjunni og svo var boðið upp á grillaðar pylsur og einhverja leiki og þrautir á eftir. Ísak Máni var í einhverjum ægilegum búningi ásamt félaga sínum og bauð alla velkomna við innganginn. Eftir þetta var skotist heim í smástund áður en farið var upp í íþróttahúsið í Seljaskóla, sem heitir víst í dag Hertz-Hellirinn, en þar ætlaði Ísak Máni að taka þátt í Íslandsmótinu í Stinger. Annað árið í röð sem Körfuknattleiksdeild ÍR og Karfan.is halda þetta mót. Þeim hefur nú enn ekki tekist að laða að mikið af nafntoguðum fallbyssum en það hefst vonandi. Ca 30 manns sem tóku þátt og Ísak Máni datt út þegar hópurinn var kominn niður í 8 manns, nokkuð gott hjá guttanum. Eftir það var brunað heim með Ísak en við hinir þrír vorum að fara í Borgarleikhúsið til að sjá Gulleyjuna. Það var alveg ágætt og Daði Steinn var þokkalegur í sinni fyrstu leikhúsferð. Ég hafði smá áhyggjur af því að hann yrði eitthvað smeykur við sjóræningjana en svo var ekki og hann hélt athyglinni allan tíma sem hlýtur að túlkast sem að takmarkinu hafi verið náð.
Þangað til næst.
Körfuboltaæfing hjá Loga Snæ kl 09:00 á laugardagsmorgninum en ég hafði víst stillt klukkuna á 07:45. Það reyndist óþarfi þar sem minnsta verkjaraklukkan skreið upp í til mín 06:45 og var eitthvað að spá í lífið og tilveruna. Eftir körfuboltaæfinguna réðst ég í það verkefni að losa eldhúsofninn úr innréttingunni hjá okkur. Hann hefur átt það til að vera hálfdularfullur og þegar hann tók upp á því að senda stóran hluta framhliðarinnar beint í gólfið þegar heimilsfaðirinn var að möndla pizzur fyrir einhverjum dögum ákváðum við að segja stopp. Sú framhlið fór í trilljón parta og eftir ítarlegt sóp og fjórar umferðir með rygsugunni var orðið gangfært aftur í eldhúsinu. YouTube kom mér í gegnum ofnalosunina án mikilla vandkvæða og ég kláraði málið með því að horfa á eftir honum ofaní gáminn á Sorpu. Ég vona að við verðum búin að leysa þetta fyrir jól en þessi hluti innréttingarinnar er ekki alveg hefðbundin varðandi hlutföll, eins og við komumst að þegar við versluðum okkur uppþvottavél hérna um árið. Ég finn lykt af skítamixi allan daginn þar sem eflaust mun ganga illa að finna græju sem passar í gatið. Það kemur í ljós, kannski efni í nýjan pistill. Við verðum bara að grilla á meðan.
Ísak Máni á körfuboltaæfingu líka þarna á laugardeginum og við hinir fórum að kaupa í matinn ásamt því að stoppa í Elko svo ég gæti rölt í gegnum ofnadeildina. Verð að segja að ég stoppaði lengur í flatskjádeildinni...
![]() |
| Ísak og Eldar |
Þangað til næst.
laugardagur, september 29, 2012
Áramótaheitið hangir, eða plankar, enn...
Plankaæfing dagsins í dag búin, tvöhundruð-sjötugasta-og-þriðja daginn í röð.
Aðeins, innan gæsalappa, níutíu-og-þrír dagar eftir.

30+ boltinn: Season III
Lét plata mig í bumbubolta með Fylki þriðja árið í röð. Tók þetta eins og í fyrra, mætti ekki á nokkra einustu æfingu en alla þá leiki sem ég komst í. Eitthvað róleg stemming yfir þessu á landsvísu, sjaldan eða aldrei færri lið í þessum 30+ flokki. Við erum að tala um að ég missti bara af einum leik, sem þurfti auðvitað að vera sigurleikur og svo skilst mér að við höfum gefið síðasta leikinn. Maður er ekki alveg að massa neina champion-tölfræði hérna, leikir sem undirritaður tók þátt í þetta sumarið:
4 leikir: 1-0-3
22. maí Fylkisvöllur
Fylkir - Breiðablik/Augnablik 1:7
29. maí Kaplakrikavöllur
FH - Fylkir 6:2
12. júní Fylkisvöllur
Fylkir - Fjölnir 13:1
4. september Fylkisvöllur
Fylkir - Afturelding 2:7
Heildarferillinn:
18 leikir: 5-0-13
Og enn ekki búinn að halda hreinu á ferlinum, þetta er hálfdapurt eitthvað.

fimmtudagur, september 13, 2012
Körfuboltalandsleikir
Man ekki eftir því að hafa farið á landsleik í körfubolta fyrr en núna síðla sumars, það gæti svo sem verið misminni. Landsliðið hefur jú nánast legið í dvala síðustu ár sem skýrir þetta að einhverju leyti, leiðir mínar á körfuboltaleiki hafa fyrst og fremst náð einhverjum hæðum síðustu 3-4 árin.
En KKÍ menn spýttu í lófa og dustuðu rykið af þessu ásamt því að nýtt fyrirkomulag, a.m.k. á undankeppni EM var kynnt til sögunnar. Það þýddi 10 landsleikjahrina með 5 heimaleikjum fór fram á rétt tæpum mánuði. Menn geta haft sínar skoðanir á þessu formi en það voru a.m.k. alvöru körfuboltamenn að kíkja á svæðið, svo mikið varð ljóst. Ég verslaði mér passa á alla leikina og var yfirleitt í hlutverki andarpabba einhverja drengja hérna úr hverfinu. 5 leikir og 5 töp, það gengur bara betur næst.
14. ágúst Ísland - Serbía 78:91
Fyrsti leikur liðsins í keppninni og það var þokkalega þétt setið í Laugardalshöllinni. Massasterkir andstæðingar en með mikilli baráttu náði íslenska liðið flottum leik.
21. ágúst Ísland - Ísrael 83:110
Áttum aldrei möguleika í öfuga Ísraela. Hérna var eitt af aðalmálunum að fá áritun hjá Omri Casspi, leikmanni Cleveland Cavaliars. Ísak Máni mætti í Cleveland peysunni sinni og hann og Logi Snær voru mættir með mynd af kappanum og penna. Það hafðist og er komið í safnið.
27. ágúst Ísland - Eistland 67:86
Eitthvað andleysi í gangi og þetta varð aldrei neinn leikur.
2. september Ísland - Slóvakía 84:86
Unnum þá á útivelli og menn voru að gæla við að hérna væru menn að verða vitni af sigurleik. Spennan var mikil en boltinn rúllaði af körfuhringnum við síðasta skot Íslands þegar bjallan gall og sárt tap staðreynd. Menn loksins búnir að átta sig á því að mæta með trommu í kofann.
8. september Ísland - Svartfjallaland 92:101
Ekki áttu menn von á nokkrum sköpuðum hlut hérna enda gestirnir á toppnum og búnir að vinna alla leikina. Eitt af markmiðunum var að bæta annarri NBA áritun í safnið en því miður lét leikmaður Minnesota Timberwolves, Nikola Pekovic, ekki sjá sig á klakanum. Hvort það hvar hlutur af einhverju vanmati skal ekki segja en Ísland fór hamförum og var með 22ja stiga forystu í hálfleik. Svartfellingar söxuðu hinsvegar á forystuna og náðu að komast yfir í fyrsta sinn í leiknum þegar rúmar tvær mínútur voru eftir. Menn voru frekar súrir eftir þetta.

sunnudagur, september 09, 2012
Listamaður
Svona fyrst ég hélt ekki lista yfir fótboltaleiki sumarsins þá þurfti ég að búa til einhvern annarskonar lista. Sundlaugar sumarsins urðu fyrir valinu. Helklikkaður, ég veit en lífið væri bara svo miklu leiðinlegra ef ekki væri fyrir klikkið.
Álftaneslaug: Fórum 2-3x þangað í sumar, en höfðum aldrei farið þarna áður. Menn þurftu að prufa öldulaugina og þessháttar í þessu bákni sem mér finnst alltaf vera holdgervingur daprar fjárhagsstöðu þessa annars ágæta bæjarfélags.
Árbæjarlaug: Aldrei þótt hún neitt spes, alltaf skítköld og eitthvað unsexy við hana. Innilaugin er reyndar fín en núna er ég bara ekki með nein ungabörn á mínum snærum, ég er meira að hugsa í rennibrautum.
Breiðholtslaug: Laugin okkar, finnst hún bara flott eins og hún er. Fínir klefar og skipulagið á lauginni alveg til fyrirmyndar.
Grafarvogslaug: Smelltum okkur í hana á einum blíðviðrisdegi og félagi hans Ísaks fékk mömmu sína til að skutla sér svo hann kæmist með okkur. Sá þurfti svo að taka strætó heim, enn ein röksemdarfærsla sem segir að ég þurfi að eiga 7 manna bíl.
Lágafellslaug: Laugin í Mosó. 2 heimsóknir í hana síðla sumars á 2ja daga tímabili og Daði Steinn fór einn í allar rennibrautirnar. Þetta er ekki flókið.
Laugardalslaug: Ekki mitt uppáhald en allt í lagi að fara stökum sinnum þarna.
Seltjarnarneslaug: Hafði ekki komið þarna áður og hún kom bara skemmtilega á óvart, ágætis tilbreytingarlaug.
Sundlaugin Hvolsvelli: Þokkalegasta sveitalaug. Einhverjar frekari heitapottsframkvæmdir þegar við vorum þarna þannig að þetta verður kannski enn betra næst.
Sundlaugin Vík: Fínasta laug miðað við stærð plássins, ég myndi t.d. velja þessa framyfir þá grundfisku hvaða dag vikunnar.
Sundlaugin Borgarnesi: Einhver þrengsta og furðulegasta búnings/sturtuaðstaða sem ég hef séð á ferlinum en ekkert út á sundlaugina eða rennibrautirnar að setja. Þarna tók Daði Steinn að-fara-einn-í-stóru-rennibrautirnar upp á næsta stig, efsta stig.
Sundlaugin Grundarfirði: Skiljanlega talsvert notuð á brölti okkar í firðinum enda þægileg leið til að skola skítinn af liðinu. Vaðlaugarleysið gerir þetta hinsvegar hálfleiðinlegt ef maður er með börn undir ca 5 ára aldri. Fær þó plús fyrir ágætlega skemmtilegt dót.
Sundlaugin Stykkishólmi: Sleppur alveg en vantaði einhvern þokka yfir þetta. Fóru mest í mig helv... útlendingarnir sem mættu ofaní án þess að fara í sturtu. Þjóðverjar...
Minnir að aðrir en ég hafi farið í Kópavogslaug og svo voru nú nokkrar sem voru á óskalistanum hjá fjölskyldumeðlimum þetta sumarið en komust ekki á listann. Vestmannaeyjar voru þar líklega efst, og við vorum nálægt því að taka rúntinn þangað en tímasetning og góð veðurspá fóru ekki saman. Logi Snær hefur sótt það stíft að fá að fara í Sundhöllina, held að það tengist eitthvað stökkpallinum, en það var sjaldan stemming fyrir því að skella sér í hundgamla innilaug þegar sólin skein. Við þurfum að fylgja honum þangað við tækifæri.

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)