miðvikudagur, október 01, 2008
þriðjudagur, september 30, 2008
Fátt er svo með öllu illt
Þegar allt virðist vera að fara til fjandans á klakanum er erfitt að sjá eitthvað jákvætt. Eða hvað? Ég var að lesa núna í gær:
„If they think a show is really poor, they can hit a red button to indicate they´d turn it off at home. U.S. networks such as CBS and Fox pay as much as $20.000 per two-hour session to find their shows´ weak points.“
Hvert er ég að fara? Jú, núna gat ég bara umreiknað dollarann með því að smella tveimur núllum fyrir aftan til að fá út verðmætið í íslenskum krónum. Rosa þægilegt.
Í öllu svartnætti verða menn að reyna að sjá ljósið.

fimmtudagur, september 25, 2008
Fótboltaferðin til London
Fór í sannkallaða fótboltaferð um síðustu helgi. Vorum fimm úr vinnunni sem keyptum okkur pakka frá Iceland Express á West Ham - Newcastle á laugardeginum og höfðum náð að útvega okkur miðum á Chelsea - Manchester United á sunnudeginum.
Flugum út á föstudeginum og eyddum þeim degi í almennt chill, aðallega á Chelsea hótelinu enda tveir gallharðir Chelsea menn í hópnum. Leikurinn á laugardeginum á Upton Park og tókum við leigubíl á svæðið. Þetta var eins og alvöru heimsreisa, tómir indverjar í því hverfi. Við fundum bullubarinn þeirra West Ham manna og þar voru menn hressir. Gríðarleg stemming og fljúgandi bjór út um allt. Leikurinn var flottur, Gianfranco Zola að stýra West Ham í sínum fyrsta leik og landi hans Di Michele að byrja sinn fyrsta leik. Hann setti tvö í 3:1 sigri þar sem við sáum Michael Owen laga stöðuna fyrir Newcastle. Stemmingin fín á vellinum og allir sáttir.

Það var búið að segja okkur að koma okkur út úr þessu hverfi hið fyrsta og skella okkur aftur í miðbæ London. Eftir leikinn var svo rosalegur fjöldi að fara í undergroundið að við ákváðum að rölta aðeins og athuga hvort við gætum ekki fundið leigubíl. Ákvörðun sem var eftir að hyggja frekar slæm. Eftir talsvert þramm í einhverja átt í þessu vafasama hverfi fundum við litla, subbulega „leigubílastöð“. Enginn bíll á staðnum en okkur var lofað bíl. Eftir að hafa hangið þarna í góðan klukkutíma inn í sóðalegri setustofu að horfa á Americans funniest homevideos á milli þess að rölta út til indverjans á horninu að kaupa öl þá kom loksins bíll. Við settumst inn og tiltókum hótelið okkar. Eitthvað varð indverskættaði bílstjórinn skrítinn á svipinn og upp kom úr kafinu að hann rataði ekki þangað. Ok, við sættum okkur við að hann myndi bara skutla okkur á Piccadilly eða bara eitthvað down-town London. Sorry, bílstjórinn hafði ekki hugmynd um hvað við vorum að tala um. Nýr bíll var boðaður á svæðið og öðrum klukkutíma seinna kom hann á svæðið. Sá bílstjóri vissi nú ekki mikið meira en hinn fyrri en var með svona GPS tæki eða hvað þetta heitir og eftir að við stöfuðum fyrir hann Oxford Street þá gátum við haldið af stað. Óskaplega var gott að komast út úr þessu hverfi.
Tókum sunnudaginn snemma og komum okkur bara út á Stamford Bridge. Ruud Gullit á svæðinu þegar við komum og vakti talsverða lukku. Fórum vitaskuld á So bar, bullubar Chelsea manna, sem er hluti af stemmingunni. Flottur leikur sem við fengum, ég var að gæla við það að Berbatov myndi setja sitt fyrsta mark fyrir United en það hafðist nú ekki. Við komumst yfir með marki frá Park en Chelsea menn jöfnuðu einhverjum 11 mínútum fyrir leikslok, 1:1 lokastaðan. Það gátu allir gengið þokkalega sáttir frá því held ég. Höfðum ekki mikinn tíma eftir leikinn, rétt klukkutíma áður en bíll sótti okkur til að skutla okkur út á flugvöll. Náðum að sjá einhverjar hetjur þarna á hótelinu, Deco, Ballack, Malouda ásamt því að Marcel Desailly var að þvælast þarna. Tókum svo í spaðann á gömlu Chelsea hetjunni Kerry Dixon á leiðinni út af hótelinu. Fyndið svo í lokinn að þegar bíllinn kom að sækja okkur sem var flottur Benz, þá lentum við á eftir bílnum hans Ashley Cole. Að bílnum hans hópaðist talsvert af fólki og hann stoppaði í smá stund. Okkur leið eins og kjánar þarna stopp á eftir honum, algjörir treflar.
Í heild bara flott ferð, flottir leikir og mikil gleði. Bara alveg eins og þetta á að vera.
Flugum út á föstudeginum og eyddum þeim degi í almennt chill, aðallega á Chelsea hótelinu enda tveir gallharðir Chelsea menn í hópnum. Leikurinn á laugardeginum á Upton Park og tókum við leigubíl á svæðið. Þetta var eins og alvöru heimsreisa, tómir indverjar í því hverfi. Við fundum bullubarinn þeirra West Ham manna og þar voru menn hressir. Gríðarleg stemming og fljúgandi bjór út um allt. Leikurinn var flottur, Gianfranco Zola að stýra West Ham í sínum fyrsta leik og landi hans Di Michele að byrja sinn fyrsta leik. Hann setti tvö í 3:1 sigri þar sem við sáum Michael Owen laga stöðuna fyrir Newcastle. Stemmingin fín á vellinum og allir sáttir.
Það var búið að segja okkur að koma okkur út úr þessu hverfi hið fyrsta og skella okkur aftur í miðbæ London. Eftir leikinn var svo rosalegur fjöldi að fara í undergroundið að við ákváðum að rölta aðeins og athuga hvort við gætum ekki fundið leigubíl. Ákvörðun sem var eftir að hyggja frekar slæm. Eftir talsvert þramm í einhverja átt í þessu vafasama hverfi fundum við litla, subbulega „leigubílastöð“. Enginn bíll á staðnum en okkur var lofað bíl. Eftir að hafa hangið þarna í góðan klukkutíma inn í sóðalegri setustofu að horfa á Americans funniest homevideos á milli þess að rölta út til indverjans á horninu að kaupa öl þá kom loksins bíll. Við settumst inn og tiltókum hótelið okkar. Eitthvað varð indverskættaði bílstjórinn skrítinn á svipinn og upp kom úr kafinu að hann rataði ekki þangað. Ok, við sættum okkur við að hann myndi bara skutla okkur á Piccadilly eða bara eitthvað down-town London. Sorry, bílstjórinn hafði ekki hugmynd um hvað við vorum að tala um. Nýr bíll var boðaður á svæðið og öðrum klukkutíma seinna kom hann á svæðið. Sá bílstjóri vissi nú ekki mikið meira en hinn fyrri en var með svona GPS tæki eða hvað þetta heitir og eftir að við stöfuðum fyrir hann Oxford Street þá gátum við haldið af stað. Óskaplega var gott að komast út úr þessu hverfi.
Í heild bara flott ferð, flottir leikir og mikil gleði. Bara alveg eins og þetta á að vera.
miðvikudagur, september 17, 2008
Rúta óskast
Óska eftir nýlegri rútu til að ferja fimm manna fjölskyldu á milli staða með góðu móti.
Á sama stað óskast 3ja hæða koja, helst í skiptum fyrir eina 2ja hæða.
Afhending miðast við miðjan mars 2009.
Á sama stað óskast 3ja hæða koja, helst í skiptum fyrir eina 2ja hæða.
Afhending miðast við miðjan mars 2009.
Nýtt hlutverk
fimmtudagur, september 11, 2008
Dr. Lárus, I presume?
Hef rætt um það hérna áður held ég hversu rosalega ómannglöggur ég get verið og hversu slæmt það getur verið í vinnunni þar sem ég hitti talsvert af fólki. Sem og í hinu daglega lífi svo sem.
Var að versla í Nettó á dögunum, rétt fyrir lokun. Sá þar mann sem ég kannaðist svo rosalega við en gat bara ekki áttað mig á því hver þetta var. Sá hann svo aftur í biðröðinni við afgreiðslukassa og ákvað að fara í einhverja aðra biðröð bara svona til öryggis ef hann myndi nú þekkja mig og þetta yrði eitthvað vandræðalegt. Sat svo heima í sófanum síðar um kvöldið og þá kom þetta allt í einu upp í kollinn á mér hver þetta var. Þetta var sko heimilislæknirinn minn.
Ég ætla að telja mér trú um að þetta sé hraustleikamerki að þekkja ekki alveg í svipinn heimilislæknirinn sinn.

miðvikudagur, september 10, 2008
Logi Snær á landsleik en pabbinn úti á túni
Áhorfendametið á knattspyrnuleik á Íslandi er 20.204. Laugardalsvöllurinn 18. ágúst 2004 þegar Ísland spilaði vináttuleik við Ítali. Við Ísak Máni vorum þar þann dag og eigum því hlut í því meti og sáum Eið Smára og Gylfa Einarsson skora mörkin í 2:0 sigri. Þetta var fyrsti alvöru leikurinn sem Ísak Máni fór á, rétt rúmlega 5 ára og ég man að mér kveið svolítið fyrir þessu því ég var ekki viss hvort hann myndi endast í sætinu sínu allan tímann. Það var ekki vandamál þegar á reyndi.
Nú var komið að Loga Snæ. Vantar nú einhverja 5 mánuði í 5 ára aldurinn en nú átti að láta verða af því að fara með drenginn á landsleik. Ísland - Skotland sem var í kvöld. Ég keypti 4 miða á netinu, fjölskyldustund skiljiði... Áttaði mig svo á því þegar ég sat fastur í umferðarsultu á leiðinni í vinnuna á mánudagsmorguninn að ég var fastur í öðru verkefni þetta kvöld, nokkuð sem ég hefði átt að kveikja á þegar ég verslaði miðana. Svona er ég stundum.
Það var því ekki annað hægt að gera en að fá staðgengil í mitt sæti og tók Guðrún það að sér. Logi Snær komst í gegnum þetta þrátt fyrir að vera vanur því á ÍR vellinum að horfa í smástund og fara svo afsíðis í smá boltaleik sjálfur, nokkuð sem er víst ekki alveg í boði á þjóðarleikvangnum. 1:2 tap fyrir Skotum og tæplega 10.000 manns, fullur völlur eins og hann er í dag.
Ég hinsvegar var staddur í húsakynnum HR í fyrsta tímanum í námskeiðinu sem ég skráði mig í á þessari önn. Mögulega meira um það síðar.

þriðjudagur, september 09, 2008
Á erlendri grundu
Ég er búinn að vera reyna að leika fyrirmyndarföðurinn þessa síðustu daga. Sigga fór í einhverja skólaskoðunarferð á miðvikudaginn síðasta en ferðinni var heitið til Svíþjóðar með viðkomu í Köben, hún kom svo heim núna síðastliðin sunnudag. Held að allir og allt hafi sloppið án teljandi skaða þrátt fyrir móðurleysið. Pizza kannski fulloft í kvöldmatinn en hey, þetta voru nú einu sinni strákadagar.
En annars af utanlandsferðum í fjölskyldunni. Hvað eiga þessir tveir knattspyrnuleikir sem háðir verða í Lúndúnum sameiginlegt?
Tími: Laugardagur 20. september 2008
Staðsetning: Upton Park
Viðburður: West Ham United - Newcastle United
Tími: Sunnudagur 21. september 2008
Staðsetning: Stamford Bridge
Viðburður: Chelsea - Manchester United
Jú, ég verð þar...

mánudagur, september 08, 2008
Markakóngur
Það er alltaf gaman þegar manni er komið ánægjulegt á óvart. Tala nú ekki um þegar börnin manns eiga í hlut.
Ísak Máni var að keppa á fótboltamóti í dag, eitthvað haustmót á vegum KSÍ í Egilshöll. Fyrir fyrsta leik tók hann á sig rögg og bað þjálfarann um að setja sig í fremstu víglínu, staða sem hann hefur afar sjaldan fengið að spila en hann hefur meira verið í vörn og marki. Það varð úr, fremsti maður í leik á móti Val. Byrjaði á því að fá þetta líka úrvalsfæri en hitti ekki rammann. Hausinn seig svolítið og pabbinn bað æðri máttarvöld um þó ekki væri nema eitt mark handa stráknum svo þetta yrði nú ekki bara böl. Einhver hefur verið að hlusta og strákurinn náði að setja eitt, úr talsvert erfiðara færi en því sem misfórst og hausinn reis upp. Valur jafnaði áður en Ísak Máni smellti inn sigurmarkinu. Skoraði svo eitt mark í næsta leik líka en var svo í marki í leik nr. 3, í þeim eina sem tapaðist. Fékk að fara fram í síðasta leikunum og sagði við pabba sinn að hann ætlaði að skora þrennu en karlinn reyndi nú að halda sínum niðri á jörðinni. Iss, 4:1 sigur á móti Þrótti og Ísak Máni með öll kvikindin. 7 mörk í þremur leikjum sem útispilari og hann snerti varla jörðina á leiðinni út úr höllinni.
Ég er ekki að sjá að hann fáist til að spila einhverja stöðu á sínum eigin vallarhelming í bráð.

sunnudagur, september 07, 2008
Skilgreining á unglingum
Pabbi hans Loga: „Er Ísak Máni orðinn unglingur?“
Logi Snær: „Já.“
Pabbi hans Loga: „Hvað eru unglingar?“
Logi Snær: „Það eru svona fótboltamenn og handboltamenn. Og Skagamenn.“
Þar hafi þið það.
Logi Snær: „Já.“
Pabbi hans Loga: „Hvað eru unglingar?“
Logi Snær: „Það eru svona fótboltamenn og handboltamenn. Og Skagamenn.“
Þar hafi þið það.
föstudagur, september 05, 2008
Skilningsleysi
Oft er mér alveg fyrirmunað að skilja Kanann. Sá á netinu að NBA körfuboltaliðið Seattle Supersonics hefur verið flutt til Oklahoma og heitir núna Oklahoma City Thunder. Stutta útgáfan af forsögunni var að kaupsýslumaður, Clay Bennett, kaupir Supersonics liðið árið 2006 og náði ekki samningum við Seattle borg um nýtt svæði fyrir félagið. Hvað gera bændur, eða öllu heldur kaupsýslumenn, þá? Jú, þeir fara bara með liðið eitthvað annað...
Þetta hefur svo sem gerst áður og ég held fast í Vancouver Grizzlies búninginn sem ég á inn í skáp og áskotnaðist þegar Villi bróðir bjó þarna úti og tel mér trú um að búningurinn hafi söfnunarlegt gildi. Ég er líka alltaf að spá í að fara setja til hliðar Vancouver Grizzlies glösin sem ég á upp í skáp, svona í söfnunarlegum tilgangi líka. Fyrir þá sem þekkja ekki Grizzlies-söguna þá var þetta NBA lið stofnað í Kanada 1995 en flutti svo til Memphis 2001 og varð þá Memphis Grizzlies.
Ekki það að þetta hafi eitthvað tilfinningalegt gildi fyrir mig en mér finnst þetta bara alltaf óheyrilega asnalegt þegar þetta gerist. Í tilfelli Sonics fékk Seattle borg greiddar einhverjar bætur fyrir sinn „missi“ en hvað með íbúana og stuðningsmennina? Manni finnst furðulegt að í landinu þar sem það eitt að missa saltstauk á tánna á þér á McDonalds getur tryggt þér fjárhagslegt öryggi það sem eftir er, að einhver sæki ekki einhvern til saka í þessu máli. Menn sitja kannski uppi með fullan fataskáp af merktum liðsfötum af einhverju liði sem ekki er lengur til. Að ég tali nú ekki um þann tilfinningarússibana sem getur fylgt því að það er bara ýtt á „EYÐA“ takkann varðandi liðið þitt.
Eða hvað?
The SuperSonics nickname, logo and color scheme will be made available to any future NBA team in Seattle. According to the team's new owners, the Sonics' franchise history will be "shared" between the Thunder and any future Seattle team.
Afsakið, en ef einhverjum dettur í hug að koma með nýtt lið til Seattle er það þá nýtt lið eða ekki? Hvernig getur saga íþróttafélags verið „shared“ milli tveggja félaga? Eru bæði liðin sama liðið en samt ekki? Hversu fáránlegt er það? Með hvaða liði eiga gömlu stuðningsmennirnar að halda?
Nei, mér er bara fyrirmunað að skilja þetta.

þriðjudagur, ágúst 26, 2008
Held fast í von og trú en...
Styttist í nýju Metallica plötuna en útgáfudagurinn er 12. september að ég held. Spenningur hjá karlinum enda gamlar hetjur á ferð. Vandamálið er vitaskuld það að eftir 5 skothelda gripi hafa komið frekar slappar 3 plötur. Síðasti góði gripurinn hvað mig varðar, svarta albúmið, kom út 1991 sem er asskoti langur tími. Svo langur tími að þegar hún kom út þá pantaði ég hana í póstkröfu og náði í hana út á pósthús í Grundarfirði í hádegishléinu í vinnunni í frystihúsinu og renndi stórum hluta hennar í gegn áður en ég þurfti að fara aftur í vinnuna. Í minningunni var ég ekkert alltof hrifinn til að byrja með en hún vann vel á og telst vel frambærileg í dag. Load og Reload plöturnar voru ekki nógu þéttar og einungis nokkur lög af þeim sem rata í spilarann hjá mér í dag. St. Anger var svipuð, þokkalegt sánd en heilt yfir ekki nógu öflug lög.
Búinn að heyra tvö lög af þessari nýju plötu (í dag hefur internetið forskot á pósthúsið) og er enn að melta þetta. Akveðið afturhvarfsfílingur virðist svífa yfir vötnum en hvort það dugar til að heilla menn verður að koma í ljós. Vona að gripurinn verði heilt yfir heillandi en hef samt mínar efasemdir, því miður. Kannski hafa síðustu plötur áhrif á þessa von mína eða öllu heldur vonleysi.
Sjáum til en það er ekki margt sem toppar 4. júlí 2004 þegar þessir drengir spiluðu hérna á klakanum. Enn fær maður gæsahúð við tilhugsunina...

sunnudagur, ágúst 24, 2008
Til hamingju Ísland

Maður reif sig á fætur í morgun til að horfa á úrslitaleikinn í handboltanum á ÓL. Þetta hafðist nú ekki alveg enda Frakkarnir geysilega sterkir og við náðum ekki alveg okkar besta leik. En eins og einhver benti á þá voru við að vinna silfur en ekki tapa gulli og þennan árangur hefði hver sem er tekið fegins hendi fyrir mótið. Auðvitað fúlt að tapa úrslitaleik og allt það en glæsilegt enga síður.
Fór svo í skottúr til Þorlákshafnar en Ísak Máni átti að spila í fótbolta þar. Mígandi rigning alla leiðina og manni leist ekkert á blikuna. Enda kom það líka í ljós að aðstæðurnar voru frekar daprar. Selfyssingar og ÍR-ingar auk heimamanna í Ægir voru mættir en veðrið var slíkt að einföld umferð var látin duga, það var ekki hægt að bjóða upp á meir af þessari rigningu og roki. Það var líka alveg fínt, stemmingin að naga kex í pollagallanum var ekkert spes. Gat ekki annað en þakkað fyrir sólina á Sauðárkróki þarna um daginn, ég hefði aldrei meikað svona steypu í tjaldi.
laugardagur, ágúst 23, 2008
Magnaðir hlutir í tengslum við menningarnótt
Við létum okkur hafa það þrátt fyrir misjafnt veður og smelltum okkur á ÍR völlinn í dag til að sjá heimamenn etja kappi við Magna. Vallarþulurinn, sem oft getur verið nokkuð hnyttinn, bauð „alla þessa fjölmörgu áhorfendur“ á völlinn en í þeim töluðu orðum hjá honum voru 7 manns mættir á pallana, þar af við fjögur. Talaði um þessa tegund af stundvísisleysi um daginn. Hvað um það, þarna hékk maður og fékk eitthvað fyrir allan peninginn svo ekki sé meira sagt. 6:2 sigur okkar manna, 16. sigurleikurinn í 17 leikjum í deildinni og 1. deildarsæti að ári gulltryggt. Það sem gerði þetta enn fremur að stórmerkilegum viðburði var að framherji ÍR, Elías Ingi, setti 4 mörk en tókst að misnota þrjár vítaspyrnur! Þær voru allar varðar en honum tókst þó að ná frákastinu í því síðasta og setja síðasta markið. Maður gat nú ekki annað en brosað út í annað þegar maður hélt heim á leið alveg holdvotur.Man eftir einu svona dæmi að sami leikmaðurinn hafi klúðrað þremur vítaspyrnum í sama leiknum, Martin Palermo, í leik með argentínska landsliðinu í Copa America 1999. Sá leikur var sýndur á gömlu Sýn en þessir leikir voru seint um nætur og maður var ekki mikið að vaka eftir þeim. Hemmi Gunn og Logi Ólafsson voru víst að lýsa þessum leik og fóru alveg á kostum heyrði maður hjá þeim sem urðu vitni af.
Ætluðum bara að taka því rólega í kvöld en Ísak Máni fékk allt í einu áhuga á að fara á Menningarnótt og við drifum okkur því niður í bæ og tókum einn hring. Vorum í seinna fallinu en fengum vott af stemmingunni. Held bara að við höfum aldrei farið niður í bæ þegar þessi viðburður hefur verið en mér sýnist að sögur af unglingadrykkju séu á rökum reistar, ansi margir ungir þarna að ráfa um. Engin orka til að bíða eftir einhverri flugeldasýningu, hérna voru menn nánast sofnaðir við eldhúsborðið þegar boðið var upp á síðbúið kvöldkaffi þegar heim var komið.
Svo þurfa menn líka að vakna snemma í fyrramálið til að hvetja íslenska handboltalandsliðið...
föstudagur, ágúst 22, 2008
Úrslitaleikurinn framundan
Þjóðarstoltið í botni þessa dagana þegar handboltalandsliðið brillerar núna leik eftir leik og ljóst er að maður kemur til með taka sunnudaginn snemma þegar stóri leikurinn verður.
Þessi mynd af Dorrit okkar eftir leikinn á móti Pólverjum hlýtur nú að vinna einhver verðlaun, þvílík snilld. Forsetinn vill halda þjóðhátíð og Dorrit fór sem fyrr á kostum með sinni einlægni því þegar upp er staðið er Ísland er ekki lítið land, það er stórasta land í heimi. Ég fíla Dorrit.

Nú lifir maður bara í voninni um gullið. Varla samt að maður þori að hugsa þá hugsun til enda...

mánudagur, ágúst 18, 2008
Grýluslóðir
Smelltum okkur í Hveragerði á laugardeginum en ÍR drottningarnar voru að spila við FC Grýlur á Grýluvelli, hvað annað? Sigga lét sig sem sagt ekki vanta og setti eitt kvikindi í þægilegum sigri. Karlarnir í fjölskyldunni voru á hliðarlínunni og dunduðu sér með bolta þess á milli.

Bæjarhátíð þeirra Hvergerðinga var þessa helgi, Blómstrandi dagar, en við stoppuðum nú ekkert til að kynna okkur aðra viðburði þessa helgi. Þó var svona litaþema í gangi eins og í Grundó (og er víst komið á flestar þessar bæjarhátíðir) en þarna var bænum skipt í þrennt, rautt, bleikt og blátt. Ég skal viðurkenna að ég tók ekki mikla úttekt á bænum en það sem ég sá var þetta voða rólegt og hvergi nærri geðveikt eins og í firðinum góða.
Annars missti ég mig aðeins á sunnudeginum og tók skokkhring á þetta, eitt stykki Elliðaárdalur. Úff, ekki hreyft mig í heavy langan tíma og boy-o-boy fann ég fyrir því. Skreið hérna heim alveg samanbrotin maður eftir því að hafa fengið staðfestingu á formleysinu sem ég vissi alveg af. Skreið bara upp í sófann og tók fótboltagláp á þetta, alveg uppgefinn. Harðsperrur í dag, slappt maður...

föstudagur, ágúst 15, 2008
Til hamingu Akureyri með nýjustu viðbótina
Þetta er náttúrulega stórfrétt og nú bíður maður bara spenntur eftir tilkynningu frá norðlenskum fréttamiðlum um komu þessa fólks.
fimmtudagur, ágúst 14, 2008
FH - Aston Villa 1:4
Fór í kvöld á Laugardalsvöllinn að sjá Aston Villa spila við FH í Evrópukeppni félagsliða, ekki annað hægt en að mæta þegar svona stór klúbbur er að spila á Íslandi. Ísak Máni kom með ásamt Jökli ofurtöffara. Gaman að sjá þessa nagla og sjá svona í action muninn á yfirmeðallagi ensku úrvalsdeildarliði og toppliðs á Íslandi.Hvað er annars með Íslendinga og fótboltaleiki eða þessháttar uppákomur af ýmsu tagi? Menn voru að tínast inn á völlinn langt fram eftir fyrri hálfleik og margir misstu því af miklu því staðan var orðin 0:2 eftir einhverjar 7 mínútur. Ótrúlegir treflar...
Hvað um það, ég var góður og sá allan leikinn.
mánudagur, ágúst 11, 2008
Öllu tjaldað til
Ísak Máni var að keppa núna um helgina með ÍR á Sauðárkróki á svokölluðu Króksmóti eða eins og Logi Snær kallar það, Crocsmótið. Fórum síðast í útilegu árið 2002 og við fengum sama tjald lánað, djásnið hans Villa sem er líklega ´86 módelið, þ.e. tjaldið ekki Villi. Ég fékk mér smá frí og við gátum því rúllað okkur af stað bara snemma á föstudeginum, fundið okkur þægilegan stað fyrir tjaldið o.s.frv. Eftir að hafa tekið smá rúnt um bæinn tók ég Siggu loksins trúanlega og keypti það að við höfðum verið þarna áður, í síðusta tjaldævintýri þarna 2002. Fengum okkur að borða í Ólafshúsi eins og síðast.
Lítið mál að tjalda í sjálfu sér, það hékk a.m.k. uppi þessa helgi. Grundvallaratriðið var þó að það rigndi ekki, ég hefði ekki boðið í það. Það var betra að vera í tjaldi þegar sólin skein, mér skilst hinsvegar að hitinn hafi farið niður í 4 gráður þessar nætur og stemmingin var ekkert ærandi þegar maður skreið framúr þessa morgna. En þegar kakóið var farið að kicka inn og sólin braust fram þá jókst nú stemmingin.
Spilamennskan hjá Ísaki Mána var fín en þarna voru lið sem hann er alla jafna ekki að spila við eins og Þór, KA, Tindastóll, Kormákur o.s.frv. Hann var reyndar færður upp úr C-liðinu yfir í B-liðið strax eftir fyrsta leik því eitthvað voru fáir tilbúnir að standa þar á milli stanganna. Mér leist svona la-la á það því þarna var hann að spila við stráka sem eru árinu eldri en hann og talsvert öflugari en þeir D-liðsmenn sem hann hefur yfirleitt verið að spila með og við. Þetta gekk samt allt í lagi, hann var samt greinilega svolítið stressaður strákurinn enda annt um álitið gagnvart eldri strákunum. Lenti einu sinni illa í því, tók nettan Taibi á þetta en fyrir þá sem ekki vita hvað það er þá er það martröð allra markvarða, missa boltann eftir skot fyrst milli handanna á sér, svo í gengum klofið og þaðan í netið. Rosalega var erfitt að standa upp og horfast í augu við samherjana eftir það...
En það sem drepur þig ekki styrkir þig og hann hélt nú hreinu í tveimur leikjum og þeir lentu í 6. sæti af 14 liðum sem verður að teljast alveg fínn árangur.
Er það bara ég eða var tjaldið okkar eins og krækiber í helvíti? Spurning líka hvort aðrir á tjaldsvæðinu séu að forðast okkur?
Lítið mál að tjalda í sjálfu sér, það hékk a.m.k. uppi þessa helgi. Grundvallaratriðið var þó að það rigndi ekki, ég hefði ekki boðið í það. Það var betra að vera í tjaldi þegar sólin skein, mér skilst hinsvegar að hitinn hafi farið niður í 4 gráður þessar nætur og stemmingin var ekkert ærandi þegar maður skreið framúr þessa morgna. En þegar kakóið var farið að kicka inn og sólin braust fram þá jókst nú stemmingin.
En það sem drepur þig ekki styrkir þig og hann hélt nú hreinu í tveimur leikjum og þeir lentu í 6. sæti af 14 liðum sem verður að teljast alveg fínn árangur.
Er það bara ég eða var tjaldið okkar eins og krækiber í helvíti? Spurning líka hvort aðrir á tjaldsvæðinu séu að forðast okkur?
þriðjudagur, ágúst 05, 2008
Hártískan
mánudagur, ágúst 04, 2008
Innipúki
Ekki var farið neitt um þessa verslunarmannahelgi og eiginlega var bara ekki neitt gert sem merkilegt gæti talist. Sem er stundum bara fínt. Það er mjög fínt að chilla svona í höfðuborginni um þessa helgi, allt svo rólegt og fáir á ferli.
Fórum í nýrri sundlaugina í Mosó, nokkuð sem Ísak Máni er búinn að bíða eftir í talsverðan tíma en nú var tækifærið nýtt til fullnustu. Allt voða nýmóðins en ég bjóst eitthvað við þessu stærra í sniðum en alveg vel brúkanlegt. Þá er maður búinn að prófa þá laug.
Skelltum okkur í bíó og sáum Wall-e. Veit ekki hvað skal segja. Ekki það að fjöldi orða í kvikmyndum sé einhver mælikvarði á gæði þá held ég að þeir sem talsettu þessa ræmu hafi þurft að smella inn fjórum orðum fyrir hlé. Eitthvað fór orðaflaumurinn að aukast eftir hlé en ég var ekkert frá mér numinn. Allt í lagi en sem sagt ekkert spes en kannski er það bara ég.
Fórum svo að leika okkur á ÍR vellinum í dag, gervigrasið opið og ekki hræða í bænum þannig að það var hægt að leika sér þar óáreittur í góða stund. Að öðru leyti var þetta bara þægilegt, farið á rúntinn og fengið sér ís. Ekki slæmt.

mánudagur, júlí 28, 2008
Á góðri stund 2008
Smelltum okkur vestur í Grundarfjörðinn um helgina á hina árlegu bæjarhátíð. Sem ég er farinn að hallast að sé eitt best geymda leyndarmálið í þessum bransa. Hvergi auglýst en alltaf örugglega rúmlega 3000 manns á svæðinu og þeir sem koma í fyrsta sinn virðast ekki gera sér grein fyrir hversu viðamikið þetta er. Bara gaman að því. Sem fyrr var bongóblíða allan tímann, smá hressileg hafgola á laugardeginum en sólin yfirgaf aldrei svæðið.
Annars var þetta að mestu leyti hefðbundið. Sveinn Brynjar, vinur hans Ísaks Mána, kom með okkur eins og í fyrra og því var maður með þrjá gríslinga en það gekk nú allt saman. Tókst reyndar að láta plata mig í einhvern fótboltaleik á sunnudeginum. Svo sem ekki neinn bara einhvern fótboltaleik heldur var þetta auglýstur sem landsleikur á milli Íslands og Póllands. 7-mannabolti sem var reyndar bara 6-manna því fleiri knattspyrnuspilandi Pólverja var ekki hægt að fá í Grundarfirði. Ég hafði nú ekki komið undirbúinn undir þetta og spilað því í marki á stuttbuxum, stuttermabol og berhentur og komst að þeirri niðurstöðu að legghlífar, markmannshanskar og annar hlífðarbúnaður er stórlega ofmetinn. Ísland vann eftir framlengingu og vítaspyrnukeppni.
Þá er hægt að fara hlakka til næsta árs. Reyndar verður það tvöfaldur pakki ef maður tekur það því þá verslunarmannahelgi verður unglingalandsmót UMFÍ í Grundarfirði. Miðað við að sundlaugin var bara rétt að valda 3000 manns þá veit ég ekki hvernig þeir ætla að tækla 10.000 manns. En það verður alla vega fótboltavöllur nánast í bakgarðinum á Smiðjustíg 9 og Ísak Máni er alveg að kaupa þá hugmynd.

fimmtudagur, júlí 17, 2008
Gáfulegt?
Litla systir hringdi í mig í dag til þess eins að spyrja mig hvort ég væri fyrir framan tölvu. Líklega vantaði henni einhverjar upplýsingar en þar sem ég var ekki fyrir framan tölvu þá náði sú umræða ekki lengra. Málið er að tölvan hennar er dauð en hleðslutækið fyrir tölvuna er bilað og hún tímir ekki að kaupa sér nýtt! Hún er sko að spá í að kaupa sér nýja tölvu en hvenær það gerist veit ég ekki en þangað til ætlar hún sko ekki að kaupa sér nýtt hleðslutæki. Líka rosalega leiðinlegt vegna þess að hún er sko með ógisslega sniðuga bloggpistla í kollinum en út af þessu öllu komast þeir ekki þaðan út til að skemmta okkur hinum.
Gáfulegt?
Maður á kannski ekki að vera svona leiðinlegur að drulla yfir litlu systur hérna á veraldarvefnum en á meðan hún fjárfestir ekki í nýrri tölvu eða nýju hleðslutæki þá er ég rólegur.
Gáfulegt?
Maður á kannski ekki að vera svona leiðinlegur að drulla yfir litlu systur hérna á veraldarvefnum en á meðan hún fjárfestir ekki í nýrri tölvu eða nýju hleðslutæki þá er ég rólegur.
fimmtudagur, júlí 10, 2008
Endalok súkkulaðiútgáfunnar
Ég er búinn að vera með ákveðinn hlut í kollinum í einhvern tíma núna. Fór allt í einu að hugsa um morgunkorn sem var til þegar ég var yngri og hét Crazy Cow. Ég verð að viðurkenna að ég mundi ekki mikið annað en nafnið, þurfti meira að segja að gúgla þetta til að fá það staðfest að þetta hefði verið til í raun og veru og ég væri ekki orðinn kreisí sjálfur. Eftir smá rannsóknarvinnu þá komst ég að því að þetta var framleitt undir merkjum General Mills, þeir hinir sömu og framleiða Cheeriosið og Cocoa Puffsið. Þetta virðist hafa verið á markaðnum í kringum 1980 og var bæði með súkkulaði og jarðaberjabragði. Mér finnst líklegt að ég hafi verið ginkeyptari fyrir súkkulaðibragðinu en sem fyrr í þessu máli verð ég að bera fyrir mig minnisleysi. Hafði þetta morgunkorn (sem var í raun kúlur) þann eiginleika að húðin leystist upp í mjólkinni og úr varð nokkurskonar kókómjólk (eða jarðaberjamjólk). Hlýtur sem sagt að hafa verið öflugara dæmi en það sem gerist með Cocoa Puffsið og Lucky Charmsið.Af hverju þessar pælingar? Mér er lífsins ómögulegt að skilja af hverju súkkulaði Lucky Charmsið sem var hérna í sölu á landinu fyrir ca 1-2 árum gekk ekki. Ég er reyndar ekki Lucky Charms maður en maður hafði trú á þessu fyrst þetta hefðbundna selst alltaf vel.
Kannski var of ýkt að fá súkkulaði líka ofan í sykurpúðana, veit ekki.
Þetta var alla vega étið hérna á heimilinu svona á tyllidögum og síðasti skammturinn úr síðasta pakkanum sem ég var búinn að hamstra var kláraður í gær. Logi Snær fékk heiðurinn. Skipti engu þótt þetta hafi runnið út á dagsetningu fyrir rétt rúmu ári, menn létu sig hafa það. Sem er kannski frekar í tilfelli Ísaks frekar en Loga en sá yngri er nú varla kominn með mikið skynbragð hvort hluturinn sé útrunninn eður ei. Sem mér finnst nú oft stórlega ýkt dæmi, sérstaklega hvað þurrvöru hrærir.
En hvað um það, þessari sögu er lokið, í bili a.m.k og hérna sést Logi innbyrða síðasta súkkulaði Lucky Charmsinu væntanlega á Íslandi. Reyndar gerði hann sér ekki grein fyrir mikilvægi augnabliksins og gat ekki klárað...
miðvikudagur, júlí 09, 2008
Yfir strikið
471...
...er sá fjöldi SMS-a sem ég sendi í maímánuði og fór all svakalega yfir strikið.
Helvítis fótboltabrölt.
...er sá fjöldi SMS-a sem ég sendi í maímánuði og fór all svakalega yfir strikið.
Helvítis fótboltabrölt.
þriðjudagur, júlí 08, 2008
Tár, bros og nýr íþróttagalli
Fengum að vita með dags fyrirvara að 6. flokkurinn hjá ÍR átti að taka þátt í móti í dag. Hálf skrítið að vera með mót frá hádegi til klukkan að verða fimm á virkum degi en það er víst allt leyfilegt yfir hásumarið. Liðið hans Ísaks beið afhroð svo ekki sé meira sagt en hann kom óskaddaður út úr því á endanum. Byrjaði fyrsta leikinn í marki en eftir að hafa þurft að hirða tuðruna níu sinnum úr netinu fór hann í aðra stöðu í hina tvo leiki sem eftir voru. Í þeim komu þrjú mörk, hann lagði upp tvö og kórónaði svo daginn með því að setja skallamark eftir hornspyrnu. Drengurinn var helsáttur við þetta og á eftir að lifa eitthvað á þessu.
Skallamark eftir hornspyrnu, það er nokkuð sem mér tókst aldrei að framkvæma á mínum útispilandi ferli og á varla eftir að gera úr þessu.
Eftir allt þetta ÍR basl allan liðlangan daginn þá var ekki annað hægt en að standa við gamalt loforð varðandi Loga Snæ en hann fékk loksins sinn eigin ÍR galla. Hann var líka helsáttur.

laugardagur, júlí 05, 2008
Costa del Sol
Flugtak var áætlað kl 6:30 þann 18. júní þannig að menn fóru snemma að sofa eftir þjóðhátíðardagsskemmtunina. Stíft ferðalag framundan því við höfðum fengið tilkynningu um að vegna versnandi gengisafstöðu krónunnar sem leiddi af sér meiri bölmóð í þjóðfélaginu sem leiddi af sér færri sólarlandapantanir þetta árið, þá var ekki annað hægt en að hliðra til eitthvað af flugferðum og í okkar tilfelli þýddi það að við þurftum að millilenda á Mallorca. Þar fór stór hluti ferðalanganna út en við þurftum að húka inn í vél og bíða eftir Íslendingum á heimleið sem þurftu að gera sér að góðu að fljúga með okkur áfram til Costa del Sol áður en þeir gátu lagt af stað heim. Til að lengja enn setuna í vélinni þá tókst öðrum af flugdólgnum sem var um borð, sem hafði greinilega farið inn á klósett og fengið sér pilluskammt ofan í allt áfengið sem hann var búinn að innbyrða, að missa meðvitund skömmu fyrir lendingu og því þurfti að kalla til spænsku lögregluna. Hún var reyndar ekkert að flýta sér að því að drösla þessum tveimur félögum út og við hin þurftum því að bíða aðeins lengur. Þetta ferðalag sem venjulega tekur víst 4 og 1/2 tíma tók 7 tíma. En út komust við.
Hótelið sem við vorum á var Timor Sol sem ég valdi eftir að hafa ráðfært mig við vinnufélaga minn sem er hokinn reynslu í þessum fræðum og búinn að prófa þetta allt. Hótelið sjálft var frekar lúið og alveg kominn tími á að poppa það upp en staðsetningin var gargandi snilld og það var í raun það sem við vorum að borga fyrir. Ströndin nánast í garðinum, stutt í smábátahöfnina með öllum veitingastöðunum og göngugata beint niður í miðbæ. Gargandi snilld.
Við höfðum tekið ákvörðun um að vera ekki að drösla börnunum í túrana til Gíbraltar og Marokkó, það er hægt að taka það síðar. Við völdum frekar styttri túrana, tókum krókódílagarðinn sem vakti mikla lukku og fórum í Selwo dýragarðinn. Síðan fórum við sjálf bæði í tívolíið og vatnsleikjagarðinn. Tívolíið var sannkölluð svaðilför, lögðum af stað fótgangandi kl 11:00 um morguninn og vorum kominn rúmlega 16:00 á leiðarenda, með skipulögðum stoppum á leiðinni. Skil reyndar ekki enn hvernig drengirnir náðu að dröslast þetta en ég verð þó að viðurkenna að síðast spölurinn var MJÖG erfiður, hitinn var alveg að gera útaf við menn. Vorum síðan í tívolíinu til rúmlega 22:00 en ákváðum að fórna einhverjum evrum í leigubíl aftur niður á hótel. Ísak Máni var reyndar smátíma að taka tívolíið í sátt en viðmiðunarhæð í mörg tækin var 1.40 metrar. Sem er svona u.þ.b. hans hæð og það fór svolítið eftir þeim sem hleyptu inn í tækin hvort hann slapp eða ekki í tækin. Verra var líka að sumsstaðar var hámarkshæð 1.40 metrar og því lendi hann í því að mega ekki fara með bróðir sínum í einhver tæki. Mjög spes. Eftir reynslu sína af tívolíinu í Kaupmannahöfn þar sem honum var hleypt í nánast hvað sem var þegar hann var rétt 5 ára þá var hann ekki alveg 100% sáttur. Ég held að hann sé búinn að setja stefnuna á að fara aftur þangað við fyrsta tækifæri og aftur í þetta tívolí þegar hann er orðinn vel yfir 1.40 metrar á hæð.
Vatnsleikjagarðurinn var líka á dagskrá hjá okkur. Mikið fjör, sérstaklega fyrir mig og Ísak Mána en Logi Snær var ekki alveg með aldur í alvöruna þótt hann hafi haft það fínt í krakkahlutanum. Við Ísak Máni gátum ekki farið án þess að fara í þessa stærstu, Kamikaze. Þegar við vorum komnir upp þá var ég: a) skíthræddur um að Ísak Máni myndi ekki þora og við þyrftum að labba niður allan stigann aftur eða b) ég myndi ekki þora og þyrfti að labba einn niður allan stigann. Veit ekki hversu vel myndin af græjunni sýnir alvarleika hennar en ég get þó sagt að þegar maður sat og leit niður þá sá maður ekki sjálfa rennibrautina því fyrstu andartökin voru nánast í frjálsu falli. Á leiðinni niður áttaði ég mig á því af hverju við áttum að vera með krosslagaðar fætur því þann hluta ferðarinnar sem ég var ekki þannig þá fóru sundbuxurnar alveg upp í heila. Við Ísak Máni tókum þrjár ferðir áður en yfir lauk og ógeðslega var það gaman.
Ekki hægt að sleppa því að tala um fótboltann en EM var vitaskuld í gangi þegar við vorum úti og Spánverjarnir fóru alla leið og kláruðu þessa keppni. Þá var sko ekki leiðinlegt að vera út á Spáni. Við fórum og horfðum á leikina meðal Spánverjanna og það var mikið fagnað á götum úti, þetta var alvöru. Ég gat líka haldið nánast óhindrað með Spánverjunum eftir að þeir slógu Ítalina mína út sem gátu svo sem ekkert í þessari keppni.
Annað sem var gert var frekar hefðbundið. Það var eitthvað farið á ströndina og svo var líka verið í sundi út í hótelgarðinum. Minigolf var stundað og almennt chill.
Niðurstaðan úr þessari sólarstandartilraun er sú að þetta var alveg að virka og ég væri til í að gera þetta aftur, ég væri meira að segja til í að fara á þennan stað aftur.
Fleiri myndir á myndasíðunni -HÉR-
Vatnsleikjagarðurinn var líka á dagskrá hjá okkur. Mikið fjör, sérstaklega fyrir mig og Ísak Mána en Logi Snær var ekki alveg með aldur í alvöruna þótt hann hafi haft það fínt í krakkahlutanum. Við Ísak Máni gátum ekki farið án þess að fara í þessa stærstu, Kamikaze. Þegar við vorum komnir upp þá var ég: a) skíthræddur um að Ísak Máni myndi ekki þora og við þyrftum að labba niður allan stigann aftur eða b) ég myndi ekki þora og þyrfti að labba einn niður allan stigann. Veit ekki hversu vel myndin af græjunni sýnir alvarleika hennar en ég get þó sagt að þegar maður sat og leit niður þá sá maður ekki sjálfa rennibrautina því fyrstu andartökin voru nánast í frjálsu falli. Á leiðinni niður áttaði ég mig á því af hverju við áttum að vera með krosslagaðar fætur því þann hluta ferðarinnar sem ég var ekki þannig þá fóru sundbuxurnar alveg upp í heila. Við Ísak Máni tókum þrjár ferðir áður en yfir lauk og ógeðslega var það gaman.Annað sem var gert var frekar hefðbundið. Það var eitthvað farið á ströndina og svo var líka verið í sundi út í hótelgarðinum. Minigolf var stundað og almennt chill.
Niðurstaðan úr þessari sólarstandartilraun er sú að þetta var alveg að virka og ég væri til í að gera þetta aftur, ég væri meira að segja til í að fara á þennan stað aftur.
Fleiri myndir á myndasíðunni -HÉR-
fimmtudagur, júlí 03, 2008
Kominn heim en nenni bara að tala um kökuna
Kominn heim frá Spáni. Nokkrar línur frá ferðinni koma hérna fljótlega og stefnan er meira að segja að dusta rykið af myndasíðunni, þ.e. ef ég man lykilorðið inn á hana enn.
Ísak Máni átti 9 ára afmæli þegar við vorum þarna úti en áður en við fórum var haldið smá fjölskylduboð og Sigga bakaði köku:

Hún lagðist misvel í gestina en bragið var allt í lagi held ég, ég sá a.m.k. ekkert slæmt við hana.

laugardagur, júní 14, 2008
Einfaldleiki karlmanna
Styttist í sólarlandaferðin. Ekki annað hægt en að yfirfara sundfatamál fjölskyldunnar. Það var farin frekar hefðbundin leið með drengina, Logi Snær fékk gamlar sundbuxur af Ísaki Mána og Ísak Máni fékk gamlar buxur af Jökli frænda. Þá var hinsvegar komið að okkur hjónaleysunum.
Sigga er búin að vera skoða þetta í einhvern tíma, hefur þrammað í hverja búðina á fætur annarri og mátaði víst ógrynni af þessháttar múnderingum í allskonar stærðum, tegundum, litasamsetningum og útfærslum. Markaðir, almennar íþróttavöruverslanir, sérverslanir með þónokkuð hátt þjónustustig og verðlagið eftir því, allt var skoðað. Endaði loksins með sett sem hún var sátt með og fimm stafa tala dregin af debetkortareikningnum.
En ég? Þrammaði inn í Intersport í dag og rakst á einhverja tilboðsslá af sundbuxum. Einn litur í boði, fann stærð L og hélt þeim upp að mér og fullvissaði mig um að þær myndu örugglega passa. Skundaði á afgreiðslukassann, 1.490 kr og málið dautt. Stundum er ósköp gott að vera einfaldur.

föstudagur, júní 06, 2008
Hef ég ekki verið hér áður?
Stundum er sagt að veröldin og það sem henni tengist fari í hringi. Þegar ég rifja upp viðskipti mín við internetþjónustufyrirtæki þá er ég á þeirri skoðun.
Ég byrjaði minn internetferil hjá Islandia þegar þeir voru með smáholustarfsemi á Grensásveginum. Það voru svo lítil viðskipti að ég gat fengið netfangið david@islandia.is án nokkurra vandkvæða. Þetta ágæta fyrirtæki varð síðan að Tal og hvítu umslögin með mánaðarlega yfirlitinu urðu appelsínugul. Næst urðu umslögin rauð og fyrirtækið var orðið Og Vodafone án þess að ég gerði nokkuð. Síðar varð Og Vodafone að Vodafone, minniháttar breyting miðað við það sem á undan gekk.
Þegar hér var komið við sögu ákvað ég að skipta sjálfur um fyrirtæki og gekk í raðir Hive. Það ágæta fyrirtæki sameinaðist einhverju öðru fyrirtæki og í kjölfarið fékk ég sms:
„Kæri viðskiptavinur. Hive hefur skipt um nafn og heitir nú Tal...“
Það er ekki öll vitleysan eins.

Bikarkeppnin
Til að hafa það á hreinu þá var ég ekki staddur í höfðustöðvum KSÍ þegar dregið var 32-liða úrslit í VISA bikarkeppninni. Við létum okkur nægja leikinn við Berserki, B-lið Víkings R. Mættum á Grundarfjarðarvöll, lentum 0:1 undir eftir 3 mínútur eða svo og það kom smá hnútur í magann á karlinum og rifjaði upp í huganum að einhver leikur fór 17:0 í sömu keppni deginum áður. Spýtum samt í og staðan í hálfleik 0:1. Gerðum hið óvænta, jöfnuðum leikinn um miðjan seinni hálfleik og maður sá Vodafonevöllinn í hillingum í næstu umferð. Okkur var þó kippt niður jafnsnöggt og við komust upp í skýin, tvö mörk í bakið á næstu mínútum og tvö í lokin þegar þolið var búið. 1:5 tap, fullstórt en maður gekk þokkalega sáttur af velli, smá svekktur samt.Búið í ár...
...mögulega segjum við þetta bara gott.
föstudagur, maí 30, 2008
Stóri skjálftinn
Skjálftinn í gær sem hristi ærlega upp í íbúum Suðurlands fór ekkert fram hjá manni. Ég var staddur niðri í vinnu, á 3. hæð. Síminn minn hringdi, þjálfari karlaliðs Snæfells í knattspyrnu var á línunni. Þá fór jörðin að hristast.
miðvikudagur, maí 28, 2008
Síðustu dagar
Það er voðalega mikið búið að vera í gangi þessa síðustu daga. Svo mikið að maður hefur ekki náð að smella neinu hérna inn þótt það hafi í raun verið ástæður til þess. Best að súmma þessu bara upp:
Grundarfjörður mætti liði Snæfells í bikarkeppni KSÍ á laugardaginn síðasta, annað árið í röð. Eftir mikið fjör, umdeilda dóma og fjöldann allan af innáskiptingum töpuðum við 4:2. Ekki voru allir liðsmenn Grundarfjarðar sáttir við þetta allt saman sérstaklega í ljósi þess að heimamenn notuðu 5 innáskiptingar í leiknum, nokkuð sem er leyfilegt í 3ju deildinni en ólöglegt í bikarkeppninni þar sem hefðbundnir 3 innáskiptingar eru leyfðar. Eftir miklar umræður manna á milli síðustu daga, var tekin sú ákvörðun um að kæra leikinn til KSÍ, með tilheyrandi skýrslugerð. Ekki er komin niðurstaða úr því máli en ef Grundarfirði verður dæmt í hag þá er ljóst að bikarævintýrinu er ekki lokið þetta árið og næsti leikur næstkomandi þriðjudag í Grundarfirði. Það verður að koma í ljós.
Tveir skemmtilegir punktar við þennan blessaða leik annars. Í fyrsta lagi er formaður Ungmennafélags Grundarfjarðar, þeirra sem eru að kæra lið Snæfells, liðsmaður Snæfells! Þessi formaður missti reyndar af leiknum sökum þess að hann er staddur erlendis og heyrst hefur að hann sé mjög fegin því svo hann þurfi ekki að standa í þessari orrahríð. Reyndar var samdómaálit hlutaðeigenda að hann teljist vanhæfur með öllu og því annarra í stjórninni að skrifa undir kæruna. Hitt atriðið er að ef skýrsla leiksins er skoðuð, t.d. til að fá yfirsýn yfir allar skiptingarnar, sjá þeir sem til þekkja ákveðin tengsl annars þjálfarans og liðsmann í liði hans. Ég veit ekki hvort það telst viðeigandi þegar sannað þykir að þjálfari liðs og leikmaður í liðinu séu að deila rúmi. Það útskýrir kannski byrjunarliðssætið, veit ekki... Fyrir áhugasama má sjá skýrsluna HÉR
Til að toppa þennan furðulega leik þá labbaði ég nánast í flasið á Björk Guðmundsdóttir, söngkonu, við innganginn í íþróttamiðstöðina í Stykkishólmi. Hversu steikt er það?
Afmælisdagskvöldinu mínu eyddi ég s.s. í kærugerð, frábært alveg eða hitt þó heldur.
Að lokum ætla ég að leggja orð í belg um Júróvisíon keppnina um síðustu helgi. Tyrkneska lagið var langbesta lagið, klárt mál. Held að það hafi lent í 7. sæti.

föstudagur, maí 23, 2008
Rændur í sveitinni?
Borgaði mig inn á fyrsta fótboltaleik sumarsins í kvöld, Snæfell - Ýmir. Hefði eflaust misst andlitið en þar var búið að leka þessum upplýsingum í mig, þ.e. að það kostaði 500 kall inn á völlinn. Var nú búinn að taka mér sæti í stúkunni góðu í Stykkishólmi og leikurinn byrjaður þegar ofvirkur rukkari tók að ganga á „alla“ í stúkunni og rukkaði með miklum móð. Hótaði að henda kunningjum sínum út með það sama ef þeir borguðu ekki um hæl. Hann var meira að segja svo grimmur að hann hélt áfram að rukka þá sem slysuðust á völlinn langt fram í síðari hálfleik, fullt verð að sjálfsögðu.
Ef ekki hafði verið fyrir markasúpu þá hefði maður heimtað að fá endurgreitt en B-lið HK tók heimamenn nokkuð létt 1:6. Leikurinn fer þó í sögubækurnar sem upphaf 3. deildar ferils Tomma frænda en karlinn kom inná þegar mjög lítið var eftir og vitaskuld settur beint upp á topp. Náði þó ekki að setja mark sitt á leikinn enda takmörk hvað hægt er að gera á 3 mínútum.
Svo er stóri leikurinn á morgun en verst að Tommi er að fara til London og getur því ekki skorað fyrir Snæfell á móti Grundarfirði...

laugardagur, maí 17, 2008
Almenn stemming langt frá því að vera góð
Vorum sem sagt í Grundó um síðustu helgi. Á sunnudeginum þar var farinn að hellast yfir mig einhver skítur sem margfaldaðist á mánudeginum þegar farið var heim. Álpaðist í vinnuna á þriðjudeginum eins ómissandi starfsmaður og ég er en náði ekki að klára daginn. Lá heima í eymd og volæði á miðvikudag og fimmtudag en tók þá ákvörðun um að ég væri orðinn nógu hress til að skella mér í vinnuna. Var þokkalegur en fann samt að ég gekk ekki á öllum hreyflum.
Núna er árstími rollurassa hjá konunni þannig að hin heilaga karlpeningaþrenning fjölskyldunnar sá um að gæta heimilisins þessa helgina. Logi Snær var þokkalegur í morgun en fór fljótlega að dala þegar nær dró hádegi. Þegar hann lá bara fyrir ákvað ég að taka vísindalega út hitastigið á honum sem kom í ljós að var ekki gott. Ástandið batnaði ekki þegar Cocoa Puffsið frá því í morgun kom aftur sömu leið og það hafði farið inn. Það var því ljóst að sjálfur formaður húsfélagsins var að fara skrópa á hinum árlega hreinsunardegi og gefa þar með skít í sótsvartan almúgann. Ísak Máni var sendur út sem fulltrúi íbúðarinnar og stóð sig eins og hetja.
Logi Snær er núna búinn að sofa síðan klukkan 17 í dag og ég bíð „spenntur“ eftir að sjá hvort hann vaknar kl. 04:30 eða eitthvað álíka, reiðubúinn að fara á fætur. Reyndar er spurning hvort maður gerir nokkuð annað en að sofa þegar líkamshitinn er kominn upp í 39,5? Nema að hitalækkandi dótið fari að kikka inn. Vonum það besta. Og ef allt færi á allra besta veg þá er kannski spurning hvort ég fari líka að ná 100% heilsu...

sunnudagur, maí 11, 2008
Hliðarframkvæmdir á heimilinu
Ég hef ekki yfir miklu að hrósa mér yfir þessa síðustu daga og hef því ákveðið að tala um framkvæmdargleðina hjá konunni. Ekki var verið að tækla mál sem hafa verið lengi á listanum eins og að mála ganginn hjá okkur, leysa speglavandamálið í forstofunni eftir að hluti af þeim brotnuðu o.s.frv. Það er nefnilega þannig að oft þegar þau verkefni sem fyrir liggja er ekki nógu spennandi þá eru einfaldlega búin til ný verkefni sem talin eru meira spennandi.
Nú var farið í það að skreyta aðeins svefnherbergi strákanna með tilheyrandi handavinnu, nokkuð sem sumum á þessu heimili finnst ekki leiðinlegt. Fyrir þá sem ekki þekkja til þá voru stafirnir á veggnum gerðir áður en Ísak Máni kom í heiminn en núna var ákveðið að poppa þetta aðeins upp.

Ekki á að láta staðar numið hér heldur er búið að leggja drög að næsta verki.

laugardagur, maí 10, 2008
föstudagur, maí 09, 2008
Á ýmsu átti maður von en...
Í gær var þvílík blíða að annað eins hefur ekki sést síðan síðasta sumar. Þess vegna var maður hálffúll yfir því að spáð var rigningu yfir þessa hvítasunnuhelgi þegar maður var á leiðinni til Grundó til að leika sér í góðu yfirlæti. Á leiðinni hingað vestur gerði maður sér grein fyrir að vandamálið var ekki í rigningarformi.
fimmtudagur, maí 08, 2008
Kominn heim, ef einhver tók eftir því að ég var ekki hérna
Tók stuttan túr til London í síðustu viku í smá vinnufélagahóp. Farið var út seinnipart miðvikudags og komið heim núna á sunnudaginn. Fyrri hlutinn var vinnuferð, eyddum fimmtudeginum og föstudeginum í heimsóknum hjá birgjum okkar, annars vegar UB og hins vegar Heinz. Helv... magnað að þeir eru staðsettir við hliðina á hvor öðrum þannig að þegar við vorum búnir hjá UB þá var einfaldlega rölt yfir götuna yfir til Heinz. Svo var tekið góður rúntur í verslanir (matvöruverslanir, ekki fataverslanir), ASDA, Tesco, Sainsbury, Lidl, Iceland og hvað þetta heitir allt saman. Skemmtilegur túr og eitthvað situr vonandi eftir á harða disknum.
Seinnipart föstudags færðum við okkur yfir á Chelsea hótelið og gistum þar í tvær nætur. Fórum út að borða á geðveikan indverskan stað, það var alveg í lagi. Rifum okkur upp snemma á laugardagsmorgninum og héldum yfir til Reading en þar var stefna sett á Madjeski stadium til að sjá Reading mæta Tottenham. Flottur völlur, alls ekki stór en flottur. Svipað dæmi og á Stamford Bridge, hótel sambyggt við sjálfan völlinn. Vorum mættir tímanlega til að sjá hádegisleikinn, Man Utd - West Ham, í sjónvarpinu. Öruggur 4:1 sigur minna manna en ég gleymdi svolítið stað og stund þarna. Þéttsetinn salur af fólki á öllum aldri þarna og annar hver maður í Reading treyju. Að búningunum undanskildum þá hefði ég alveg eins geta verið á Ölveri eða öðrum sambærilegum sportbar og þegar United komst í 1:0 hoppaði ég upp úr sætinum og gargaði: „YES“. Ég áttaði mig hins vegar á stað og stund þegar ég gerði mér grein fyrir að ég var sá eini sem sýndi þessi viðbrögð. Viðbrögð annarra við þessum viðbrögðum mínum voru þó ekki harkaleg sem heitið getur en einn samferðarmaður minn hallaði sér að mér og hvíslaði: „Ég ætla bara að minna þig á að við erum staddir í Reading.“ Brynjar Björn leikmaður Reading sem var reyndar ekki í hópnum vegna meiðsla kom á svæðið með miðana okkar en hann hefur náin tengsl við sölustjórann hjá okkur. Það vakti smá athygli en samt ekki eins mikla og ég hefði kannski haldið, nánari skýringar á því hérna á eftir. Seinna tók mig tali maður á karlaklósettinu og spurði hvort ég væri ekki United aðdáandinn sem þekkti Brynar Björn þannig að maður var orðinn heimsfrægur í Reading...
Leikurinn sjálfur var nú ekkert spes en maður skemmti sér samt mjög vel og alltaf gaman að fara á völlinn í Bretlandi. Heimamenn töpuðu 0:1 og eru í bullandi fallbaráttu fyrir síðustu umferðina um næstu helgi. Eftir leikinn röltum við aðeins þarna um svæðið og það kom nú í ljós að þetta var náttúrulega hálfgerður „sveitaklúbbur.“ Leikmennirnir gengu nú frekar óáreittir þarna um, einn og einn sem bað um eiginhaldaráritun og einstaka ljósmyndir teknar en heilt yfir var þetta frekar heimilislegt. Maður var bara ekki nógu mikið lesinn yfir þessu Reading liði til að þekkja þessa leikmenn og vorum við ósparir að spyrja næsta mann hver þessi og hinn var. Alveg eins og asnar... Fyrir áhugasama má nefna leikmenn eins og Kevin Doyle, James Harper, Stephen Hunt, Michael Duberry, Shane Long sem voru að spóka sig þarna í góðum gír með bindishnútana á hreinu. Annars lítið um að vera í Reading þannig að við komum okkur aftur til London, á Piccadilly Circus og smelltum okkur á Fridays. Á meðan við biðum eftir borði fór fram minn eini „verslunarleiðangur“ í ferðinni, náði að henda mér inn í Lillywhite´s og versla sinn hvorn Roma bolinn á drengina en því miður náði ég ekki að taka almennilegan rúnt þarna. Ég elska nefnilega svona risaíþróttabúðir! Rifin á Fridays voru alveg í lagi.
Hádegisvélin heim á sunnudeginum, fínt að koma heim svona um miðjan dag frekar en að vera í einhverju tómu rugli fram eftir nóttu. Sigga og Ísak Máni komu að sækja mig en Logi Snær var hjá ömmu sinni í Mosó. Á leiðinni heim enduðum við á ÍR vellinum en ÍR var að spila við Hvöt, úrslitaleikur í einhverjum Framrúðubikar, Lengjubikar B held ég að hann heiti. Komum beint í framlenginguna og sáum ÍR komast yfir. Leikurinn var að fjara út þegar allt varð vitlaust á vellinum, spilandi þjálfari Hvatar straujaði einn ÍR-inginn út við hornfána og fékk kröftugt stjak fyrir. Hann ákvað að svara því stjaki með velútilátandi hægrihandarkrók svo glumdi í. Orðbragðið sem fylgdi í kjölfarið verða ekki höfð eftir hérna. Allt gerðist þetta tæpum 3 metrum frá okkur og Ísak Máni fékk því sýnikennslu í því hvernig fullorðnir karlmenn hegða sér þegar illa gengur.
Íþróttir = forvarnir?

sunnudagur, apríl 27, 2008
Ísak Máni í boltanum
Dómarinn í lokaleiknum, ungur strákur sem spilar með einhverjum af yngri flokknum hjá ÍR, kom til Ísaks eftir leikinn og hrósaði honum með þeim orðum að hann hefði klárlega verið maður leiksins. Frábært hvað svona einfalt hrós sem kostaði ekki krónu né túkall getur verið mikils virði því minn maður ljómaði allur á eftir og talaði mikið um þetta. Skítt með úrslitin og allt svoleiðis, þetta var hápunturinn á mótinu. Rosamontinn enda mátti hann það alveg, átti fínar „vörslur“ í leiknum.
Styttist í Eyjamótið í júní og maður finnur umræðuna í kringum það allt magnast meðal foreldra og strákanna í hópnum. Við verðum vitaskuld á Costa del Sol og ég er rosaánægður með það. Ég get bara ekki sagt að mig langi mikið til að fara til Eyja og hanga þar í einhverja daga. Ísak var strax sáttur þegar við ræddum um þetta og enn eru engir bakþankar farnir að koma fram í dagsljósið hjá honum. Þeim bræðrum er reyndar farið að hlakka rosamikið að fara til Spánar og ber ferðin oft á góma hérna heima. Veit reyndar ekki alveg hversu mikið Logi Snær er að fatta þetta en hann veit a.m.k. að við þurfum að fara í flugvél og fljúga lengi, lengi, lengi til að komast til Spánar.
föstudagur, apríl 25, 2008
7,65 af 10,0
Held að það þýði 7,5. Það þýðir allavega að karlinn var að massa þetta.
Nú er bara spuring hvað maður gerir næst?
Byrjum á að fara í sumarfrí.
Nú er bara spuring hvað maður gerir næst?
Byrjum á að fara í sumarfrí.
sunnudagur, apríl 20, 2008
Af drottningum í myndalausum pistli
Ég vældi einhverntíma hér um það að Sigga væri að slá mér við þegar mynd af henni kom á valur.is. Enn á ný sló hún mér við með að komast á hinn geysiöfluga vef fotbolti.net eins og sjá má hér. Hverju hef ég áorkað? Umfjöllun á grundarfjordur.is, og ekki einu sinni mynd...
Drottingamót ÍR var haldið í gær, í annað skipti og sumir búnir að bíða spenntir alveg síðan í fyrra. Verst að Sigga var búin að vera lasin og hafði meira að segja ekki haft það í vinnuna á fimmtudaginn og föstudaginn. Það var því lítið annað að gera en hellast yfir öll hestu húsráðin í bókinni og mér var falið að fjárfesta í engiferrót, sítrónu og sitthvað fleira. Ásamt því var góðum skammti af hinum helstu verkjalyfjum innbyrt, í rúmlega leyfilegu magni.
Veðrið var frábært og 14 lið mætt til þátttöku. Ljóst er að ÍR drottningarnar höfðu vonast eftir fleiri stigum í hús en raun varð á. Oft var samt við ramman reip að draga og t.d. voru 2 töp fyrir KR og Breiðablik með minnsta mögulega mun þar sem lið andstæðinganna innihéldu m.a. fyrrverandi landsliðskempur. Gleðin var samt í fyrirrúmi og allir skemmtu sér hið besta ásamt því að framkvæmd mótsins tókst með ágætum en það hefur ansi mikið að segja í svona dæmi.
Mér tókst nú samt að gera upp á bak á þessum degi. Það var í raun tvennt sem ég átti að sjá um á meðan mótið var, annars vegar að hafa yfirumsjón með börnunum og hins vegar að sjá um myndavélina. Börnin komu nú ósködduð eftir 3 tíma veru niðri á ÍR vellinum en það sama er hins vegar ekki hægt að segja af myndavélahlutanum. Samviskusamlega hafði ég smellt rafhlöðunum úr myndavélinni í hleðslu kvöldið fyrir mót, minn með allt á tæru. Þegar ég hins vegar var kominn niður á völl, fyrsti leikur hafinn og ég gerði mig líklegan til að taka mynd af Siggu þegar hún geystist upp kantinn þá gerðist hins vegar ekkert. Mér til mikillar hrellingar þá uppgötvaði ég að rafhlöðurnar væru enn í hleðslu í eldhúsinu heima. Ég tók þá ákvörðun að skokka út á bensínstöðina við völlinn og kaupa bara rafhlöður til að leysa málið. Keypti rafhlöður frá þekktum framleiðanda sem gáfu sig að auki út fyrir að innihalda "special power" svo ég átti nú að vera í góðum málum. Ekki var ég nú upplitsdjarfur þegar þetta myndavélin virkaði ekki með þessum nýju sérstöku kröftum. Gat reyndar skoðað þær myndir sem voru á minniskortinu en þegar ég ætlaði að taka mynd þá fór skjárinn í hass og græjan harðneitaði að gera nokkuð fyrir mig. Taka skal fram að þessi myndavél er sú sem ég fékk í staðinn fyrir þá gömlu sem bilaði á Stamford Bridge hérna um árið, af öllum stöðum, þannig að ég var alveg með það á hreinu að þessi væri að bila líka. Ekki náði ég sem sagt að smella svo mikið sem einni mynd af drottningunni á heimilinu. Þegar ég kom heim smellti ég gömlu rafhlöðunum í og græjan virkaði alveg eins og hugur manns. Mér leið eins og asna og rifjaði upp samtal mitt við konuna eftir fyrsta leikinn hjá henni:
Ég: "Mér tókst að gleyma rafhlöðunum heima í hleðslu."
Sigga: "Skutlastu þá ekki bara heim og nær í þær?"
Ég: "Nei, nei, ég stekk bara hérna út í bensínstöð og kaupi nýjar, það hlýtur að verða í lagi."
Note to self: Alltaf að hlusta á konuna og gera mér grein fyrir að hennar hugmyndir eru yfirleitt líklegri til árangurs en mínar.

fimmtudagur, apríl 10, 2008
Leiðinlegur pistill, aðallega hugsaður fyrir mig að blása út
Þá er maður búinn að tækla prófið. Veit ekki hvað skal segja, á planinu út á bílastæði eftir prófið grét nánast ungur maður út í bíl eftir að hafa uppgötvað að í annarri ritgerðaspurningunni var það sem hann skrifaði um „veiku kenninguna“ átti við um „sterku kenninguna“ og öfugt. Auðvitað vissi ég alveg hvort var hvað en í einhverju stundarbrjálaði þá virðist ég hafa blokkast út og víxlað þessu. Eftir að hafa barið höfðinu það fast í stýrið að ótrúlegt var að loftpúðinn blés ekki út þá reyndi ég að komast heim. Bullet with butterfly wings kom á X-inu og ég blastaði græjurnar (eins mikið og hægt er að tala um að blasta orginal græjur í VW Golf). Náði seinni hálfleiknum á Man Utd - Roma en gat lítið skemmt mér vegna sjálfsvorkunnar. Eftir að hyggja er ómögulegt að segja hvernig þetta helvíti fór. Vonlaust að segja nokkuð um krossana en mér fannst þó að ég væri eitthvað að tengja þar og stuttu skilgreiningar gengu nokkuð vel. Ritgerðirnar voru s.s. annars vegar víxl dauðans og svo tómt blaður um allt og ekkert. Arrrgggg...
Í Menntaskólanum að Laugarvatni var takmarið 4 til að ná prófinu, í raun 3,5. Það var takmarkið þá og gekk ekki alltaf upp, spáið í því að geta ekki tæklað 35% af prófinu! En reyndar var maður staddur í einhverri steypu sem maður hafði hvorki áhuga né getu til árangri. Ég meina eðlisfræði og stærðfræði, hvern var maður að blekkja? Í fjölbraut upp á Skaga var takmarkið 5. Gekk samt betur og allt saman á endanum. Sömu kvaðir á HÍ og sama sagan, gekk allt upp á endanum. Í raun eru enn sömu kröfur í HR en málið var að nú var ég búinn að hækka kröfurnar persónulega á mig. Takmarkið var sett á 7-una og ekkert rugl. Auðvitað spilaði það líka inn í að þótt það væri nóg að fá 5 til að standast áfangann þá er nauðsynlegt að fá 7 ef ég ætla að fá þennan áfanga metin úr „opnum háskóla“ yfir í dagskóla eða HMV (Háskólanám með vinnu). Ekki það að ég ætli eitthvað endilega að nota mér það en það er bara gott að eiga möguleikann inni. 7 er líka bara flott einkunn og ekkert múður með það.
Hvað gæti gerst?
Búinn að losa út, nú krossa ég bara fingur og vonast eftir því besta.

- Ég næði ekki prófinu og þá er það bara greinilegt, ég hef ekkert í þetta að gera. Því það var ekki eins og ég hafi ekki lesið bókina yfir kennslutímabilið og las svo námsefnið í strimla þarna vikuna fyrir próf.
- Ég næði prófinu en fengi ekki 7 í áfanganum og gæti þá í alvöru fengið froðufellandi tremmakast yfir víxlverkandi ritgerðaspurningunni minni.
- Ég næði að klóra mig í prófinu í 6 og með góðri einkunn í síðara hópverkefninu (sem ég er ekki búinn að fá einkunn fyrir) gæti það, mögulega, dregið mig upp í 7.
Búinn að losa út, nú krossa ég bara fingur og vonast eftir því besta.
föstudagur, apríl 04, 2008
Skólaævintýrinu að ljúka... í bili a.m.k.
Þessi vika er búin að vera algjört rugl. Var að skila seinna verkefni í skólanum núna síðasta miðvikudag og svo er prófið núna næsta miðvikudag. Það var svolítið stress með þetta verkefni, maður var að skríða heim í versta falli kl 02:00, og vinnudagurinn daginn eftir var ekki nógu spennandi. Einhvern tíma var ég þó kominn heim um miðnætti þannig að það var í lagi... En ég held að það hafi allt gengið upp með þetta verkefni. Mögnuð þessi hópavinna.
Þessi helgi fer s.s. í lestur og almennan (andlegan) undirbúning fyrir þetta blessaða próf. Lenti í ansi athyglisverðum pakka núna í síðasta tímanum fyrir prófið. Kennarinn var að fara yfir uppbyggingu prófsins og vildi meina að blöðin sem hann hélt á væru sjálft prófið sem hann ætlar að leggja fyrir okkur. Þetta skapaði sérstaka stemmingu í stofunni, ég segi ekki múgæsing en svona sérstaka stemmingu. Þetta er kannski þekktur húmor meðal kennara í HR, veit ekki. Ég sá samt húmorinn í þessu.
Veit ekkert hvað ég geri í haust, hvort maður ætlar eitthvað að stunda þetta áfram eða láta gott heita. Ég sé nú samt að það er ekki sjéns að ég ráði við meira en einn kúrs með fullri vinnu, ekki nema að afneita fjölskyldunni og þjást af síþreytu alla daga. Það væri kannski hægt að minnka við sig vinnu? Er það eitthvað sem Íslendingar gera?
Jæja, prófið á miðvikudaginn og ef ég ætla að nota fá þennan áfanga metinn inn í almenna pakkann í HR þá er takmarkið bara eitt:
A.m.k. 7 í einkunn. Shit.
Þangað til...

miðvikudagur, mars 26, 2008
Guðlast?
Ég var illa tekinn um daginn. Vinnufélagi minn var að dásama nýja hringitóninn sinn og leyfði mér að heyra án þess að segja mér hvað þetta væri. Ég gerði mér grein fyrir að þetta var eitthvað stef úr einhverri mynd eða einhverjum þætti sem ég átti að þekkja en gerði ekki. Ég reyndi samt að halda kúlinu og setti upp ég-veit-alveg-hvað-þetta-er-en-það-er-bara-alveg-stolið-úr-mér lúkkið. „Hvað er að þér, Don Vito Corleone maður“ fékk ég að heyra og gerði mér þá grein fyrir að umrædda stef var úr Guðföðursmyndunum.
Málið er nefnilega að ég hef ekki séð „The Godfather“. Ekki mynd nr. I, II eða III. Ég geri mér grein fyrir að þetta staðreynd sem er mér ekki líkleg til almennrar álitshækkunnar en þetta er staðreynd enga síður.
Málið var nefnilega það að ég ætlaði alltaf að taka góðan dag eða góða helgi og taka bara allan pakkann í einum rykk. Þetta var árið 1990 og eitthvað og enn hefur ekkert gerst.
Ég var næstum því dottinn inn í byrjunina á mynd nr. II þegar hún var sýnd á RÚV hérna um árið en stóð upp og slökkti því mér fannst fáránlegt að horfa fyrst á hana áður enn ég sæi nr. I.
Djöfull er ég týndur.

sunnudagur, mars 23, 2008
2000 0513 3013 2911
Þar kom að því að maður gat ekki flúið lengur. Ég var búinn að vera alveg extra ánægður með bankann minn vegna þess að þeir virtust ekkert vera að æsa sig yfir þessum auðkennislyklum sem eiga víst að auka eitthvað öryggið í netbönkum. Fékk svona græju senda heim, ætli sé ekki komið ár síðan eða svo, en umslagið fauk inn í skáp óopnað. Hef svo séð fólk í kringum mig vera dinglandi með þetta, lyklakippan mjög algeng. Ekki hef ég heyrt marga tala vel um þetta tæki, líftíminn virðist vera frekar takmarkaður, sérstaklega þegar fólk er að dröslast með þetta á fyrrnefndum lyklakippum út um allt.
Hvað um það, nú fékk ég bréf frá bankanum þar sem mér var tilkynnt að ef ég virkjaði ekki þetta núna í lok mars þá fengi ég einfaldlega ekki inngang í bankann í gegnum netið. Djöfull...
Núna er ég sem sagt kominn með svona drasl hangandi á kippuna mína og USB-lykillinn sem ég er með af því að Tommi frændi segir að það sé alveg nauðsynlegt er kominn með sálufélaga.

Manchester United - Liverpool 3:0
Maður hafði smá áhyggjur af því að sjá ekki stórleikinn hérna í sveitinni en það var ekki hægt að bregðast knattspyrnuáhugamönnum í bæjarfélaginu og því var Kaffi 59 opið. Við Ísak Máni röltum þarna út og fengum okkur öl og franskar (hann var reyndar bara í vatninu). Manchester vann og allt flott og fallegt með það en við feðgarnir fórum reyndar á kostum þarna, svona okkar á milli.

Mascherano leikmaður Liverpool fékk gult spjald snemma leiks og virtist ekki vera í andlegu jafnvægi eins og nokkrir aðrir leikmenn liðsins. Ég halla mér upp að Ísaki og segi: „Hann fær rautt fyrir hlé, pottþétt.“ Á 44. mínútu fékk kappinn seinna gula spjaldið og þar með rautt.
Ísak toppaði þetta nú samt. Í hálfleik var staðan 1:0 og það mark hafði komið á 34 mínútu. Ísak kom þá með eftirfarandi fullyrðingu í byrjun síðari hálfleik: „Þar sem United skoraði 11 mínútum fyrir hlé mun koma annað mark 11 mínútum fyrir leikslok.“ Og á 79. mínútu, 11 mínútum fyrir leikslok skoraði Ronaldo annað mark United. Nani bætti svo um betur tveimur mínútum seinna og við héldum kátir heim á leið, ógeðslega ánægðir hvað við voru sniðugir og svalir. Næsta stopp var sparkvöllurinn.

Páskar í Grundarfirði
Við í Grundó en mamma út á Spáni. Við reynum samt að finna eitthvað til að borða þótt það sé ekki eldað ofan í okkur.

Vorum nú ekkert að missa okkur í þessu, páskaegg nr. 4 fyrir hvern karlpening en frúin sætti sig við eitt nr. 2. Ég held að Logi Snær hafi ekki innbyrt svo mikið sem einn bita en samt er þetta allt að verða búið.
Þá er bara spurning, hvert þetta fór allt saman?

fimmtudagur, mars 20, 2008
Fermingafár
Karlinn búinn að taka tvær fermingar núna á stuttum tíma, enda árstíminn þesslegur. Fórum fyrst um síðustu helgi til Gúzza (held ég sé með stafsetninguna rétta) og Jökull, aka Jolly yo-yo, staðfesti pakkann í dag. Maður er sem sagt búinn að gúffa í sig slatta af orkuforða og taka í spaðann á fullt af fólki sem maður á að vita hvað heitir en gæti ekki munað það til að bjarga lífinu.

En þetta er víst pakki sem maður fær yfir sig fyrr en maður heldur, það er að segja ef mínir drengir ákveða að láta ferma sig. Mér heyrist nú að það hafi ekki beint letjandi fermingaáhrif á börn sem eru að velta þessu fyrir sér að fara í svona veislur og verða vitni af gjafaflóðinu, án þess að þessar tvær sem ég sé búinn að fara í séu eitthvað ýktar.
Amen.

sunnudagur, mars 09, 2008
Stefnan sett á sól og sumaryl
Framundan í sumar er sól og sumarylur. Karlinn tók á sig rögg og bókaði fjölskylduna í 2ja vikna ferð til Costa del Sol, þegar íslenska sumarið stendur mögulega sem hæst. Ég hef aldrei verið talsmaður þess að hverfa af skerinu í þann stutta tíma sem maður á hvað mestan möguleika á að fá sómasamlegt veður, ég er alveg maður í að taka mér frí og fara til útlanda í febrúar, mars eða október, nóvember. En þar sem konan starfar sem kennari og drengirnir eru í skóla og leikskóla þá er ekki mikið annað í boði en að fara til útlanda þegar þau eru í fríi, ef maður ætlar á annað borð til útlanda.Það verður athyglisvert, þetta er ekkert sem maður hefur stundað í gegnum tíðina. Fór reyndar einu sinni sem gutti á suðrænar slóðir en það var reyndar yfir jól og áramót, ætli það hafi ekki verið árið 1990 eða um það bil. Þá fór maður bara í sundlaugina á meðan beðið var eftir að jólin gengu í garð. Nú verður öðruvísi stemming og við vonum að þetta hið mesta fjör, Ísak Máni er a.m.k. bjartsýnn á að þetta verði bara gaman.
þriðjudagur, febrúar 26, 2008
Niðurtalning hafin
Nú á að reyna að endurupplifa fjörið frá því í fyrra. Spurning um hvort maður þarf ekki að vera í einhverju sem getur kallast form eða a.m.k. vottur af því? Bumban gefur hitt til kynna.
En hey, ég hef tæpa 90 daga...
Bikarkeppni KSÍ 2008:
1. umferð
Mánudagur 26.maí:
20:00 Völsungur - Magni (Húsavíkurvöllur)
20:00 Tindastóll - Kormákur (Sauðárkróksvöllur)
20:00 Höfrungur - Skallagrímur (Þingvöllur)
20:00 Snæfell - Grundarfjörður (Stykkishólmsvöllur)
20:00 KV - Ýmir (KR-völlur)
20:00 KFR - KB (Hvolsvöllur)
20:00 Ægir - Elliði (Þorlákshafnarvöllur)
20:00 Álftanes - Hamrarnir (Bessastaðavöllur)
20:00 Reyðarfjörður - Boltaf. Norðfj. (Fjarðabyggðarhöllin)
20:00 KFG - Augnablik (Stjörnuvöllur)
20:00 Hvíti riddarinn - UMFL (Varmárvöllur)
20:00 Hrunamenn - Árborg (Flúðavöllur)
20:00 Þróttur V. - Gnúpverjar (Vogavöllur)
20:00 Berserkir - Kjalnesingar (Víkingsvöllur)
Þriðjudagur 27. maí:
20:00 Leiknir F. - Spyrnir (Fáskrúðsfjarðarvöllur)
20:00 Dalvík/Reynir - Hvöt (Dalvíkurvöllur)
2. umferð
Mánudagur 2. júní:
20:00 Reyðarfj/Boltaf.Norð - Fjarðabyggð
20:00 Leiknir R - KFG/Augnablik (Leiknisvöllur)
20:00 Höttur - Huginn (Vilhjálmsvöllur)
20:00 Tindast/Kormákur - DalvíkReynir/Hvöt
20:00 Vöslungur/Magni - KA
20:00 Þór - KS/Leiftur (Akureyrarvöllur)
20:00 Þróttur V/Gnúpverjar - Hvíti Riddarinn/UMFL
20:00 Ægir/Elliði - Reynir S
20:00 Víkingur Ó. - Grótta (Ólafsvíkurvöllur )
20:00 Álftanes/Hamrarnir - Hamar
20:00 Njarðavík - KFR/KB (Njarðvíkurvöllur)
20:00 KFS - KV/Ýmir (Helgafellsvöllur)
20:00 Haukar - Afríka (Ásvellir)
20:00 Höfrungur/Skallagri. - Selfoss
20:00 Víkingur R. - Afturelding (Víkingsvöllur)
20:00 ÍBV - ÍR (Vestmannaeyjavöllur)
20:00 Víðir - Hrunamenn/Árborg (Garðsvöllur)
20:00 Snæfell/Grundarfjörð - Berserkir/Kjalnesing
20:00 ÍH - Stjarnan (Ásvellir)
20:00 Sindri - Leiknir F/Spyrnir (Sindravellir)

sunnudagur, febrúar 24, 2008
Helgin
Best að hripa nokkrar línur hérna svo smettið á Jóhönnu færist neðar.
Búið að vera þétt helgi, byrjuðum í skírnarveislu á föstudeginum hjá Haraldi og Krístínu en litli drengurinn þeirra fékk nafnið Hallsteinn Skorri.

Ísak Máni keppti síðan á körfuboltamóti í Smáranum á laugardeginum. Hann náði að setja körfu á móti KR og var helsáttur með það. Annað körfuboltamótið hans en hann skoraði ekkert á hinu fyrsta og það var eitthvað sem hann var ekki nógu sáttur með. Ég hafði reyndar ekkert séð hann í körfu síðan á því móti en það er greinilegt að hann er orðinn talsvert öflugri á þessum 4 mánuðum sem liðnir eru. Mamma hans fékk það verkefni að fara með honum, fyrsti leikur kl 08:30 en við Logi Snær chilluðum heima en komum síðar um morguninn og sáum síðasta leikinn. Svona hangs fer ekki alltaf vel í geðheilsuna á Loga Snæ en það er efni í annan pistil.

Um kvöldið hélt fjölskyldan síðan sitt eigið undankeppniseurovisonpartý með snakki, Ben & Jerry´s, ostum og vínberum svo eitthvað sé nefnt. Ég get ekki sagt að ég missi einhvern svefn yfir þessu en ekki annað hægt að fylgjast með.
Ég tók svo sunnudaginn með trompi, ef svo má segja og dreif mig upp í Þjóðarbókhlöðu með námsbækurnar á meðan konan var heima að þrífa, enda konudagur... Ég get ekki sagt að þessir klukkutímar upp í Hlöðu hafi verið spennandi. Loftleysið var ekki alveg minn tebolli og svo er búið að úthýsa nestisáti með öllu, ef maður hefði ætlað að éta nestið eftir lögum og reglum þá hefði ég þurft að fara út í bíl og nærast þar. En þar sem maður tók það ekki í mál þá var ekkert annað að gera en að taka sjénsinn og naga rúnstykkið á meðan ég var að lesa. Ekki ætlaði ég að fara inn á klósett og éta þar og ekki ætlaði ég að láta ræna mig í þessari kaffiteríu.
Meiri djö... vitleysan.
Búið að vera þétt helgi, byrjuðum í skírnarveislu á föstudeginum hjá Haraldi og Krístínu en litli drengurinn þeirra fékk nafnið Hallsteinn Skorri.
Ísak Máni keppti síðan á körfuboltamóti í Smáranum á laugardeginum. Hann náði að setja körfu á móti KR og var helsáttur með það. Annað körfuboltamótið hans en hann skoraði ekkert á hinu fyrsta og það var eitthvað sem hann var ekki nógu sáttur með. Ég hafði reyndar ekkert séð hann í körfu síðan á því móti en það er greinilegt að hann er orðinn talsvert öflugri á þessum 4 mánuðum sem liðnir eru. Mamma hans fékk það verkefni að fara með honum, fyrsti leikur kl 08:30 en við Logi Snær chilluðum heima en komum síðar um morguninn og sáum síðasta leikinn. Svona hangs fer ekki alltaf vel í geðheilsuna á Loga Snæ en það er efni í annan pistil.
Um kvöldið hélt fjölskyldan síðan sitt eigið undankeppniseurovisonpartý með snakki, Ben & Jerry´s, ostum og vínberum svo eitthvað sé nefnt. Ég get ekki sagt að ég missi einhvern svefn yfir þessu en ekki annað hægt að fylgjast með.
Ég tók svo sunnudaginn með trompi, ef svo má segja og dreif mig upp í Þjóðarbókhlöðu með námsbækurnar á meðan konan var heima að þrífa, enda konudagur... Ég get ekki sagt að þessir klukkutímar upp í Hlöðu hafi verið spennandi. Loftleysið var ekki alveg minn tebolli og svo er búið að úthýsa nestisáti með öllu, ef maður hefði ætlað að éta nestið eftir lögum og reglum þá hefði ég þurft að fara út í bíl og nærast þar. En þar sem maður tók það ekki í mál þá var ekkert annað að gera en að taka sjénsinn og naga rúnstykkið á meðan ég var að lesa. Ekki ætlaði ég að fara inn á klósett og éta þar og ekki ætlaði ég að láta ræna mig í þessari kaffiteríu.Meiri djö... vitleysan.
laugardagur, febrúar 23, 2008
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)